Bændur samþykkja búvörusamninga

Atkvæði féllu þannig um sauðfjársamning að 60,4 prósent kjósenda samþykktu samninginn. 37,3 prósent höfnuðu sauðfjársamningnum. Auðir seðlar og ógildir voru 2,3 prósent atkvæða. Alls voru 2944 á kjörskrá og 1671 atkvæði var greitt. Kosningaþátttaka sauðfjárbænda var 56,8 prósent.
Atkvæði féllu þannig um nautgripasamning að 74,7 prósent kjósenda samþykktu samninginn. 23,7 prósent höfnuðu samningnum. Auðir seðlar og ógildir voru 1,6 prósent atkvæða. Alls voru 1244 á kjörskrá og 881 atkvæði var greitt. Kosningaþátttaka kúabænda var 70,8 prósent
Fulltrúar Bændasamtaka Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs skrifuðu undir nýja búvörusamninga 19. febrúar. Samningarnir eru til 10 ára en gert er ráð fyrir að þeir verði teknir til endurskoðunar tvisvar á samningstímanum, árin 2019 og 2023.
Tekist hefur verið á um samninginn undanfarnar vikur. Forsætisráðherra segir að með nýjum búvörusamningum sé verið að leitast við að bæta starfsaðstöðu bænda og gera þeim kleift að sækja fram. Þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa gagnrýnt búvörusamninginn segja hann glórulausan fjáraustur.
Tengdar fréttir

Segir búvörusamninga ekki þjóna neytendum
Daði Már Kristófersson, dósent í hagfræði, segir að samningarnir komi í jafnvel í veg fyrir eðlilega þróun innan landbúnaðarins.

Búvörusamningar undirritaðir: Útgjöld ríkisins aukast um 900 milljónir á næsta ári
Stefnt er að því að leggja niður kvótakerfi í mjólkurframleiðslu og sauðfjárrækt á samningstímanum.

Búvörusamningar: Kostnaður ríkisins við landbúnaðinn meiri en kostnaður Svavarssamninga hefði verið
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að þegar spurt sé nákvæmlega hvernig almenningur hagnast á nýjum búvörusamningum, þá séu svörin mjög loðin.

Formaður ASÍ: Ráðherra neitaði að hleypa neytendum að búvörusamningaborðinu
Gylfi Arnbjörnsson segir tækifærum til sóknar í landbúnað vera sólundað.

Kallar búvörusamninginn glórulausan fjáraustur
Helgi Hjörvar segir búvörusamnnginn ekki vera til hagsbóta fyrir bændur og neytendur og fela í sér glórulausn fjáraustur.

Forsætisráðherra gagnrýnir gagnrýni á nýjan búvörusamning
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir að gagnrýni á bændur og landbúnað langt út í haga með samanburði á milli nýs búvörusamnings og Icesavesamnings.

Búvörusamningurinn verðtryggður
Verði meðalvísitala neysluverðs önnur en verðlagsuppfærsla fjárlaganna á að leiðrétta í fjárlögum næsta árs á eftir.

„Nóg komið af því að við séum látin éta skít“
Sauðfjárbóndi á Suðurlandi hvetur bændur til að fella nýja búvörusamninga

Verja 132 milljörðum í landbúnað á tíu árum
Ríkið hyggst leggja 132 milljarða króna í styrki til landbúnaðar næsta áratug samkvæmt nýjum búvörusamningi sem undirritaður var í gær. Árlegt framlag hækkar um 900 milljónir. Umbreytingasamningur segir landbúnaðarráðherra.

Deilt um búvörusamninga
Farið yfir gagnrýni á samninganna umdeildu.