Fyrrverandi borgarstjóri Gautaborgar auglýsir eftir vinnu sem vörubílstjóri Atli Ísleifsson skrifar 30. október 2019 13:34 Ann-Sofie Hermansson gegndi embætti borgarstjóra Gautaborgar á árunum 2016 til 2018. wikipedia
Ann-Sofie Hermansson, fyrrverandi borgarstjóri Gautaborgar, hefur endurnýjað meiraprófsréttindi sín og auglýsir nú eftir vinnu sem vörubílstjóri. „Hvur fjárinn, ég er nú vaxin upp við þetta. Pabbi minn var bílstjóri og það var hann sem kenndi mér að keyra vörubíl,“ segir Hermansson í samtali við sænska fjölmiðla. Hermansson á langan feril að baki í stjórnmálum og gegndi þannig embætti borgarstjóra Gautaborgar á árunum 2016 til 2018. Hún auglýsti eftir nýrri vinnu á samfélagsmiðlum fyrr í vikunni. Færsla Hermansson vakti talsverða athygli, en þar birtir hún mynd af endurnýjuðu ökuskírteini. „Það sem stuðaði fólk mest var að ég birti mynd af kortinu með kennitölu, en það er nú ekki svo hættulegt,“ segir Hermansson við SVT. Á stjórnmálaferli sínum starfaði Hermansson meðal annars sem aðstoðarkona Monu Sahlin, fyrrverandi ráðherra Jafnaðarmannaflokksins, auk þess að starfa í borgarstjórn Gautaborgar, síðast sem borgarstjóri. Hún kveðst hafa fengið að prufukeyra nýjan, rafmagnsknúinn sorpbíl Volvo á Götaplatsen á síðasta ári og það hafi verið þá sem hún hafi gert upp hug sinn. „Það var draumur að fá að prufukeyra hann. Það var eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert og ég vildi ekkert slíta mig frá stýrinu.“ Hermansson fékk fyrst meiraprófsréttindi árið 1983 og starfaði um tíma sem vörubílstjóri hjá Volvo. „Ég verð nú að vinna fyrir mér og getað borgað leiguna.“En hver myndi vilja ráða fyrrverandi stjórnmálamann úr framlínunni eins og þig?„Það er líklega það sem er vandinn, en ég get ekki sagt annað en að ég hef áhuga á að vinna og bíta á jaxlinn!“
Svíþjóð Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fleiri fréttir Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Sjá meira