Vilja létta álögunum og skipta því út fölsuðum gullpeningum frá 1960 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. janúar 2019 06:00 Son Heung-min með gullverðlaunin sem hann vann á Asíuleikunum og slapp um leið við herþjónustu. Nú vilja Suður-Kóreumenn fleiri gull. Vísir/Getty
Son Heung-min og félagar í knatspyrnulandsliði Suður-Kóreu ætla sér stóra hluti í Asíukeppninni sem fer fram í þessum mánuði og suður-kóreska þjóðin bindur líka miklar væntingar til liðsins síns. Hvernig tengist það því að knattspyrnusamband Suður-Kóreu er að reyna að skipta út öllum gullverðlaunum sem landsliðsmenn Suður-Kóreu fengu eftir sigurinn í Asíukeppninni árið 1960? Jú, ástæðan er góða gamla hjátrúin. Umræddir leikmenn í landsliði Suður-Kóreu eru síðustu Asíumeistarar þjóðarinnar í knattspyrnu karla. Síðan eru liðin 59 ár og margir trúa því í Suður-Kóreu að fölsuðum gullpeningum sé um að kenna. Fjölmiðlaumfjöllun hefur líka snúist mikið um þetta undanfarin ár. Besti árangur Suður-Kóreu í Asíukeppninni síðan 1960 er annað sætið sem landslið Suður-Kóreu hefur fjórum sinnum þurft að sætta sig við síðan.South Korea's Football Association has given gold medals to the children of four dead players who received fakes in 1960. Full story https://t.co/VDSyyS4ukd — BBC Sport (@BBCSport) January 15, 2019 Þar á meðal er síðasta Asíukeppni árið 2015 en Suður-Kóreumenn töpuðu þá fyrir Ástralíu í framlengdum úrslitaleik. Ástralía vann þar sinn fyrsta Asíutitil. Þrír af fyrrnefndurm fjórum úrslitaleikjum Suður-Kóreu hafa tapast í framlengingu eða vítakeppni. Leikmennirnir í sigurliðinu frá 1960 fengu falsaða gullpeninga og hafa sumir lýst því að „gullið“ hafi bara flagnað af verðlaunapeningnum þeirra. Knattspyrnusamband Suður-Kóreu hefur verið að skipta út gullverðlaunapeningum leikmannanna á síðustu fimm árum. Nú síðast fengu börn fjögurra leikmanna nýjan alvöru gullpening en feður þeirra eru látnir. Nú er að sjá hvort álögunum sé loksins létt. Son Heung-min er mættur til móts við liðið í Sameinuðu arabísku furstadæmunum þar sem keppnin fer fram. Liðið vann nauma sigra á Filippseyjum og Kyrgystan án hans en næsti leikur eru við Kína.
Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira