Sport

Maywe­at­her snýr aftur á næsta ári: Sögu­sagnir um bar­daga gegn Kabib

Anton Ingi Leifsson skrifar
Mayweather er að snúa aftur í hringinn.
Mayweather er að snúa aftur í hringinn. vísir/getty
Floyd Mayweather mun snúa aftur í bardagahringinn á næsta ári en hann er sagður stefna á að berjast tvisvar á árinu 2020.

Goðsögnin setti mynd af sér á Instagram-síðu sína þar sem hann sagðist ætla snúa aftur árið 2020 en hann hefur unnið alla 50 bardaga sína.

Samkvæmt heimildum TMZ Sports ætlar hann að berjast einu sinni við hnefaleikakappa og svo er hann einnig sagður vilja berjast við UFC kappa.







Bardagarnir eru sagðir fara fram í maí og september en fulltrúi UFC-stjörnunnar, Khabib Nurmagomedov, gaf það í skyn á dögunum að Khabib sé klár í að berjast við Floyd.

Mayweather hefur ekki barist síðan hann vann sigur á Conor McGregor í ágúst 2017 en það má með sanni segja að Conor og Khabib séu engir perlu vinir.

Box



Fleiri fréttir

Sjá meira


×