Erpur á Grænlandi Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar 29. nóvember 2019 08:30 Erpur og Dj Moonshine hljóðmaður með meiru. Fréttablaðið/Anton Brink
Blakkát geta verið misgáfuleg eins og þjóðin veit nú þegar alltof vel. Hressandi birtingarmynd er að plana utanlandsferðir eftir einn, eða tuttugu og einn, en svo hálfa leiðina út á Keflavíkurflugvöll hljómar Magaluf og Bene ekkert svo vel. Iceland Air Connect flýgur hins vegar frá Reykjavíkurflugvelli beint til Grænlands, fríhöfn og allt,“ segir rapparinn Erpur Eyvindarson, einnig þekktur sem Blaz Roca. „Ísland er búið að vera heitasti áfangastaður ferðalanga heimsins núna í nokkur ár en almennt eru ferðamenn að sækja norður. Grænland á þannig framtíðina fyrir sér en ballið er rétt að byrja, þegar nýi alþjóðaflugvöllurinn og þjóðvegurinn verða reddí á allt eftir að breytast,“ segir Erpur. „Í dag ferðast menn um þetta risavaxna land með þyrlum, bátum og snjófarartækjum, lítill túrismi þannig séð. Svo það er sérstaklega spennandi að skella sér núna. Túristarnir fatta það bráðum, hérna á Íslandi til dæmis borga menn tugi þúsunda til að skoða sílamáva og veiða ufsa en þegar maður fer rétt út fyrir byggðarlög Grænlands sér maður þvílíkar ófreskjur; rostunga, ísbirni og haugana af stórhvelum.“Erpur kynntist auðvitað frábæru fólki á norðurslóðum.Hann segir Nuuk vera frekar nútímalega. „Þarna getur þú keypt ferska exótíska ávexti, kókoshnetur og einhverja veislu og næsta búð við hliðina græjar þig með alls konar hvalkjöti og sauðnauti,“ segir Erpur. „Snjósleðar og mótorhjól eru reyndar bönnuð innan borgarmarka og þú sérð fleiri Porsche heldur en hundasleða, en engu að síður mjög frábrugðið og spennandi. Við vorum sem sagt með matar og menningar pop-up, BlazRoca rapp festival og KO.RE setti kóreskan götumat sinn í grænlenskan búning, var með hreindýr og selkjöt við gríðarlega ánægju heimamanna,“ segir Erpur. „Við fylltum þarna skemmtistaðinn Manhattan og létum íslenskar Kópavogsrímur föndra við mannskapinn. Við gerum það sama núna um helgina í Færeyjum á hinum hálf íslenska Sirkus í Þórshöfn. Það verða með okkur rapparar af svæðinu og hráefnið verður það líka, eflaust grindhvalur og pysjuvængir með kimchi.“Ferðin var í samstarfi við veitingastaðin KO.RE og Atli Snær, eigandi og aðalkokkur staðarins, matreiddi kóreskan mat með grænlensku ívafi fyrir gesti sem fannst ekki ónýtt að fá heitan og vel kryddaðan og mat í köldu norðrinu.Næsti þátturinn af Landanum á RÚV verður mikið til undirlagður af Grænlandsævintýri þeirra Erps og félaga. „Svo verða frændur okkar í Færeyjum í sviðsljósinu þessa helgi, fólk getur fylgst með Instagramminu minu og Snapchatti. Atlantic Airways flýgur reyndar frá Keflavíkurflugvelli en fyrir vikið er flugið sneggra, enda þota sem um ræðir, en ekki huggulegu spaðarellurnar sem ferja mann til Grænlands.“Markús og Erpur í Grænlandsför sinni.
Birtist í Fréttablaðinu Grænland Íslendingar erlendis Mest lesið Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Lífið Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Lífið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Fleiri fréttir Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Sjá meira