Handbolti

Óskiljanleg ummæli og engin bönn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Kristinn og Kristján Örn.
Kristinn og Kristján Örn. vísir/bára
Eyjamennirnir Kristinn Guðmundsson og Kristján Örn Kristjánsson voru hvorugir dæmdir í bann vegna ummæla sinna eftir leik ÍBV og Aftureldingar.

Framkvæmdastjóri HSÍ, Róbert Geir Gíslason, vísaði ummælunum til aganefndar þar sem þau voru tekin fyrir.

Kristinn, sem er annar þjálfara liðsins, lét dómara leiksins heyra það og sagði það vera slakasta dómarapar landsins. Sérstaklega annar dómari parsins en parið er Ramunas Mikalonis og Þorleifur Árni Björnsson.

Aganefnd segir að ummælin séu þjálfaranum ekki til framdráttar en sér engu að síður ekki ástæðu til þess að refsa fyrir þau.

Skyttan Kristján Örn lét frá sér furðulega setningu um Aftureldingu og peninga í viðtali á RÚV. Hún var svona: „Ég held að Afturelding telji peningana sína mjög dýrt núna.“

Aganefnd segir að þessi ummæli séu með öllu óskiljanleg samkvæmt orðanna hljóðan og almennri málvenju. Því sé ekki tilefni til að aðhafast.

Dómur aganefndar HSÍ:

1. Aganefnd hefur borist erindi frá framkvæmdastjóra HSÍ vegna ummæla sem Kristinn Guðmundsson, þjálfari ÍBV viðhafði um dómgæslu og dómaramál í viðtölum við fjölmiðla (visir.is og mbl.is) eftir að leik ÍBV og Aftureldingar í mfl. karla 15. október sl. lauk. Í samræmi við 18. gr. reglugerðar HSÍ um agamál var ÍBV gefinn kostur á að skila inn skriflegri greinargerð.

Greinargerð hefur borist frá ÍBV. Samkvæmt 18. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er stjórn eða framkvæmdastjóra HSÍ heimilt að vísa til aganefndar atvikum sem skaðað geta ímynd handknattleiksíþróttarinnar.

Um getur verið að ræða hvers kyns ósæmilega framkomu innan eða utan leiks eða á annan hátt opinberlega. Aganefnd hefur farið yfir umrædd ummæli. Aganefnd tekur undir að þjálfarinn hefði í viðtalinu mátt viðhafa varfærnislegra orðalag og að téð ummæli séu honum ekki til framdráttar.

Með vísan til fyrri fordæma er það hins vegar mat nefndarinnar að gera verður í þessum efnum, greinarmun á, annars vegar ummælum sem fela í sér almenna gagnrýni á störf dómara og hins vegar alvarlegum aðdróttunum í garð einstakra aðila, ásakanir um óheiðarleika eða aðra viðlíka háttsemi. Telur nefndin að umrædd ummæli feli fyrst og fremst í sér gagnrýni þjálfarans sem byggja á upplifun hans og hann getur að einhverju marki fært rök fyrir.

Innan tjáningarfrelsis þjálfarans rúmast, að mati nefndarinnar, réttur hans til að segja, innan skynsamlegra marka, skoðun sína á frammistöðu dómara, leikmanna og skipulagi HSÍ. Með vísan til alls framangreinds er niðurstaða nefndarinnar að ummælin feli ekki í sér ósæmilega framkomu sem skaðað getur ímynd handknattleiksíþróttarinnar.

Að mati nefndarinnar er ekki tilefni til að láta aðila sæta viðurlögum í máli þessu en áréttar þó mikilvægi þess að þjálfarar líkt og leikmenn liða sýni í orðum og í verki þá almennu háttvísi og framkomu sem samboðin er handknattleiksíþróttinni.

2. Aganefnd hefur borist erindi frá framkvæmdastjóra HSÍ vegna ummæla sem Kristján Örn Kristjánsson, leikmaður ÍBV viðhafði um dómgæslu og dómaramál í viðtölum við fjölmiðla (ruv.is) eftir að leik ÍBV og Aftureldingar í mfl. karla 15. október sl. lauk.

Í samræmi við 18. gr. reglugerðar HSÍ um agamál var ÍBV gefinn kostur á að skila inn skriflegri greinargerð. Greinargerð hefur borist frá ÍBV. Samkvæmt 18. gr. reglugerðar HSÍ um agamál er stjórn eða framkvæmdastjóra HSÍ heimilt að vísa til aganefndar atvikum sem skaðað geta ímynd handknattleiksíþróttarinnar.

Um getur verið að ræða hvers kyns ósæmilega framkomu innan eða utan leiks eða á annan hátt opinberlega. Aganefnd hefur farið yfir umrædd ummæli og telur þau með öllu óskiljanleg bæði samkvæmt orðanna hljóðan og almennri málvenju. Verða þau því ein og sér ekki talin nægjanleg til að aðila verði gert að sæta viðurlögum í máli þessu.

Með vísan til alls framangreinds er niðurstaða nefndarinnar að ummælin feli ekki í sér ósæmilega framkomu sem skaðað getur ímynd handknattleiksíþróttarinnar. Að mati nefndarinnar er ekki tilefni til frekari athafna í málinu.


Tengdar fréttir

Ummæli Kristins og Kristjáns á borð agafnendar

Íþróttadeild hefur fengið staðfest að ummælum Kristins Guðmundssonar og Kristjáns Kristjánssonar hefur verið vísað til aganefndar HSÍ af framkvæmdastjóra sambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×