Örn tekur við karlaliði Selfoss Örn Þrastarson hefur tekið við störfum sem þjálfari karlaliðs Selfoss í Olís deildinni í handbolta. Hann er félaginu vel kunnur eftir tuttugu ár hjá Selfossi. Handbolti 5.6.2026 16:47
Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Ingimundur Ingimundarson og Hrannar Guðmundsson eru nýir þjálfarar karlaliðs Aftureldingar í handbolta. Handbolti 4.6.2026 19:42
Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Uppskeruhátíð HSÍ var haldin í gær og leikmenn, þjálfarar og dómarar heiðraðir fyrir frammistöðu sína á nýafstöðnu tímabili í Olís deildum karla og kvenna. Valsararnir Arnór Snær Óskarsson og Lovísa Thompson voru valin bestu leikmenn tímabilsins í deildunum tveimur. Handbolti 4.6.2026 16:17
Hákon Daði til Aftureldingar Hornamaðurinn Hákon Daði Styrmisson hefur skrifað undir þriggja ára samning við Handknattleiksdeild Aftureldingar. Handbolti 28. maí 2026 11:24
FH-ingar boða til blaðamannafundar FH-ingar munu á morgun greina frá þjálfaramálum karlaliðs félagsins í handbolta á blaðamannafundi í Kaplakrika. Handbolti 27. maí 2026 20:01
Lokahófi HSÍ aflýst Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að aflýsa Lokahófi HSÍ sem átti að fara fram næstkomandi laugardag í Austurbæ. Sport 27. maí 2026 15:26
Verður Aron þjálfari FH? Handkastið greinir frá því að Aron Pálmarsson muni taka við þjálfun karlaliðs FH í handbolta. Sigursteinn Arndal verði aðstoðarþjálfari. Handbolti 25. maí 2026 22:45
Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Einar Rafn Eiðsson hefur gert eins árs samning við FH um að spila með liðinu í Olís-deild karla í handbolta á næstu leiktíð. Hann kemur til liðsins frá KA á Akureyri. Handbolti 23. maí 2026 11:05
Dagur snýr heim úr atvinnumennsku Örvhenta skyttan Dagur Sverrir Kristjánsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Stjörnuna og mun spila með liðinu í Olís deild karla á næsta tímabili. Hann snýr því heim til Íslands úr atvinnumennskunni. Handbolti 15. maí 2026 15:31
Santos óskaði eftir starfslokum sem þjálfari Selfoss Carlos Martin Santos hefur ákveðið að hætta störfum sem þjálfari Selfoss í Olís deild karla í handbolta. Handbolti 13. maí 2026 18:01
Birgir Már til Amicitia Zürich Örvhenti hornamaðurinn Birgir Már Birgisson hefur samið við svissneska félagið Amicitia Zürich. Hann hefur leikið með FH síðan 2018. Handbolti 12. maí 2026 09:35
„Eitt allra eftirminnilegasta íþróttalið síðasta áratuginn“ Eftirminnileg endurkoma karlaliðs Selfoss í handbolta gegn Haukum í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn 2019 er til umfjöllunar í þrettánda þætti Augnablikanna, „Enn ein endurkoman.“ Handbolti 10. maí 2026 09:01
Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Miklar breytingar verða gerðar á úrslitakeppninni í handbolta frá og með næstu leiktíð, hjá körlum og konum, og liðum í efstu deild kvenna fjölgað úr átta í tíu. Handbolti 9. maí 2026 20:05
Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Sýn Sport leit við í garðpartýi hjá Magnúsi Óla Magnússyni, leikmanni handboltaliðs Vals, sem vann Íslandsmeistaratitilinn í fyrrakvöld. Handbolti 9. maí 2026 09:02
Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Valur varð Íslandsmeistari í handbolta í 25. sinn í sögu félagsins eftir 27-26 sigur gegn FH í oddaleik á Hlíðarenda í kvöld. Ljósmyndari Vísis var á svæðinu og fangaði stemninguna. Handbolti 7. maí 2026 23:31
„Við áttum þetta skilið“ Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals var að vonum mjög ánægður eftir sigur sinna manna í oddaleik gegn FH um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrsta tímabil Ágústs við stjórnvölinn hjá karlaliði Vals verið gjöfult og skilað tveimur titlum, en liðið varð einnig deildarmeistari. Handbolti 7. maí 2026 22:09
Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum „Þetta eru blendnar tilfinningar. Örugglega minn síðasti leikur á ferlinum, gegn mínu uppeldisfélagi, en ég enda þetta sem Íslandsmeistari. Ég get ekki alveg lýst tilfinningunum mínum núna“ segir Magnús Óli Magnússon eftir 27-26 sigur Vals í oddaleik gegn FH um Íslandsmeistaratitilinn. Handbolti 7. maí 2026 21:39
Valur - FH 27-26 | Valur Íslandsmeistari eftir sigur gegn FH í oddaleik Valur er Íslandsmeistari í handbolta 2026. Varð það ljóst eftir eins marks sigur gegn FH í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn fyrir framan troðfulla N1-höll, þar sem löngu var orðið uppselt. Lokatölur 27-26 í æsispennandi leik. Handbolti 7. maí 2026 18:46
Titillinn undir í oddaleik: „Eitthvað magnað sem ræður úrslitum í kvöld“ Úrslitin ráðast í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn í Olís deild karla í handbolta í kvöld þegar að Valur og FH mætast í oddaleik í úrslitaeinvígi deildarinnar. Sérfræðingur Sýnar á von á hádramatík í leik kvöldsins eins og var raunin í síðasta leik liðanna. Ungstirni gætu leikið lykilhlutverk. Handbolti 7. maí 2026 16:17
Titillinn undir: „Bæði lið hafa spilað feykilega vel“ „Við erum bara spenntir. Við erum búnir að hvíla okkur vel síðustu tvo daga og fara ágætlega yfir okkar leik. Við ætlum að mæta tilbúnir til leiks í kvöld á okkar heimavelli,“ segir Ágúst Jóhannsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta, fyrir hreinan úrslitaleik hans manna við FH um Íslandsmeistartitilinn í kvöld. Handbolti 7. maí 2026 11:32
Brosandi út að eyrum allan daginn eftir landsliðsvalið Jón Bjarni Ólafsson, línumaður FH, er einn þriggja nýliða í íslenska karlalandsliðinu í handbolta sem mætir Egyptalandi í tveimur vináttulandsleikjum síðar í þessum mánuði. Hann iðar í skinninu að spila fyrir íslenska landsliðið. Handbolti 5. maí 2026 09:32
Myndasyrpa: Landsliðsþjálfarar á ógleymanlegum slag í Krikanum Fjórði leikur FH og Vals í einvíginu um Íslandsmeistaratitil karla í handbolta fer í sögubækurnar sem einn sá rosalegasti í sögu mótsins. Ljósmyndarinn Anton Brink var í Kaplakrika og náði frábærum myndum. Handbolti 5. maí 2026 08:32
„Get alveg lofað þér því að honum leiddist þetta ekkert“ Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, treysti sér ekki í að reyna að útskýra það sem átti sér stað í leik liðsins gegn Val í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 4. maí 2026 22:58
„Nú er það bara kassinn út á fimmtudaginn“ „Mér fannst augnablikið vera með okkur þegar við vorum komnir í seinni framlenginguna,“ sagði Róbert Aron Hostert eftir súrt tap Vals gegn FH í úrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. Handbolti 4. maí 2026 22:45