Litla öskubuskuævintýrið í Portúgal Benedikt Bóas Hinriksson skrifar 2. október 2019 11:00 Alex Centelles, sem er á láni hjá Famalicão frá Valencia, fagnar sigrinum gegn stórliði Sporting á dögunum af mikilli innlifun. NordicPhotos/Getty
Kóngarnir í Portúgal þessa stundina eru litla liðið Famalicão. Liðið er efst eftir sjö umferðir og lagði einn af risunum í portúgalska fótboltanum, Sporting frá Lissabon, í síðustu umferð á útivelli. Liðið er í eigu forríks Ísraela, Idan Ofer, og Quantum Pacific Group sem á einnig stóran hlut í Atletico Madrid. Liðið rauk upp úr annarri deildinni fyrir þetta tímabil og fékk 19 nýja leikmenn fyrir tímabilið. Ofurumboðsmaðurinn Jorge Mendez er einnig með puttana í liðinu því nokkrir ungir og efnilegir skjólstæðingar hans eru á mála hjá því. Liðið er svo óþekkt og svo lítið að þegar þrjár umferðir voru búnar og liðið á toppnum var varla hægt að finna merki þess – þó að það væri gúglað. Meira að segja Helgi Valur Daníelsson, sem lék í portúgölsku deildinni og fylgist að eigin sögn ágætlega með deildinni, hafði ekki hugmynd um hvaða lið þetta væri þegar eftir var leitað. Eðlilega, því fyrir áratug var liðið í fimmtu deild og fór í aðra deildina fyrir fimm árum. Það komst upp í maí en var spáð rakleiðis beint niður aftur. En peningar geta gert kraftaverk í fótboltanum. Idan Ofer, sem metinn er á 5,1 milljarð dollara sem eru ansi margar íslenskar nýkrónur, fer fyrir fjárfestingarfélagi sem á einnig um þriðjung í Atletico Madrid og liðið er nýjasta leikfang þess.Famalicao leikmenn stóðu út á velli lengi eftir sigurinn gegn Sporting og klöppuðu til sinna stuðningsmanna.Snemma í september jók Ofer hlut sinn í Famalicão upp í 85 prósent. Hann dældi peningum inn í félagið og fékk liðið 19 nýja leikmenn til sín. Leikmennirnir sem komu voru ekkert slor því þeir voru flestir á mála hjá Jorge Mendes og Gestifute-umboðsskrifstofunni. Þarna má finna Diogo Goncalves sem er í U-21 árs landsliði Portúgals og miðjumanninn Guga sem komu frá risunum í Benfica og eru undir handarjaðri Mendes en aðrir hafa komið frá öðrum liðum sem Mendes stýrir eins og Valencia á Spáni og Úlfunum á Englandi.Ofurumbinn Jorge Mendes er með puttana víða í fótboltanum. Núna er Portúgal leikvöllurinn hans.Ruben Lameiras, sem spilaði í unglingaliði Tottenham kom í sumar og Josh Tymon, enskur vinstri bakvörður, hefur þótt magnaður. Sá er í láni frá Stoke en þjálfarinn, Joao Pedro Sousa, þekkir enska boltann vel eftir að hafa verið aðstoðarmaður hjá Hull, þar sem hann vann með Tymon, Watford og síðast Everton. Trúlega er Tymon sá eini sem er þarna fyrir hæfileika sína því þjálfarinn lagði mikla áherslu á að fá kappann. Þá er Gustavo Assuncao einnig á láni frá Atletico Madrid. Það kom lítið á óvart að Sousa var valinn stjóri ágústmánaðar og verður trúlega líka fyrir valinu í september. Portúgalska deildin er númer átta yfir sterkustu deildir Evrópu. Flestir nýliðar í þeim deildum eru að ströggla í upphafi tímabilsins fyrir utan Famalicão og Granada á Spáni, sem situr í öðru sæti La Liga. Á Englandi eru nýliðarnir fyrir neðan 12. sæti og Aston Villa í fallsæti, nýliðarnir þrír í Þýskalandi eru allir við botninn, Brescia, Lecce og Genoa eru í neðri hlutanum á Ítalíu og í Frakklandi eru Metz og Brest í 17. og 18. sæti. Í Rússlandi eru nýliðarnir í Tambov í neðsta sæti en Sochi í því tíunda. Að Famalicão nái að halda sér á toppnum fram í maí er ekki líklegt. Það gerist sjaldan að einhver nái að skáka risunum þremur, Benfica, Sporting og Porto, sem hafa unnið deildina alltaf nema tvisvar. Boavista skákaði þeim árið 2001 og gamla félagið hans Helga Vals, Belenenses, varð meistari 1945. Næsti leikur Famalicão er einmitt gegn Porto sem situr í þriðja sæti, stigi á eftir litla liðinu. Hvort þetta verkefni takist hjá þeim Mendes og félögum skal ósagt látið en það er allavega alltaf gaman að fá upp ný andlit og nýtt félag á toppinn, hvar sem það er í Evrópu.Heimavöllur liðsins tekur aðeins fimm þúsund manns í sæti.
Birtist í Fréttablaðinu Fótbolti Portúgal Mest lesið Dagur henti tveimur leikmönnum sínum upp í stúku Handbolti Íslendingar ættu frekar að vera hræddir Handbolti Gleðin snerist í sorg hjá Danmörku Handbolti Skandall á EM í handbolta: „Hefði aldrei átt að gerast“ Handbolti Alfreð mætti með sína menn klára í leik upp á líf eða dauða Handbolti Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga Enski boltinn „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Enski boltinn „Það trompast allt þarna“ Handbolti EM í dag: Það eru engar afsakanir í boði Handbolti Íslendingar sitja fastir í Svíþjóð Handbolti Fleiri fréttir Benoný til bjargar eftir vandræðalegt sjálfsmark liðsfélaga „Carrick gaf stuðningsmönnum „smjörþefinn“ af Ferguson-tímanum“ Hjólhestaspyrna táningsins tryggði Brighton stig Mourinho kallar nýjustu sögusagnirnar sápuóperu Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Guardiola um Haaland: „Hann svaf ótrúlega vel“ Marokkó leitar réttar síns hjá FIFA: „Þetta sár grær ekki auðveldlega“ Hörður Björgvin tekinn af velli í hálfleik í unnum leik Yfirmaður Jóns Dags í stríði við lögreglu Guéhi genginn til liðs við City Börsungar brjálaðir út í dómara sem tók þrjú mörk af þeim „Þetta eru svakaleg kaup“ Slóst við boltastráka sem vildu stela handklæðinu Tískuspaðinn Þorleifur fer aftur út Sagður fá lengri líflínu „Þegar þú ert ráðinn til Chelsea er bara spurning hvenær þú verður rekinn“ Rauk út eftir lætin í blaðamönnum Algjör upplausn í úrslitaleik Afríkukeppninnar: „Farsakennt“ Aston Villa mistókst að höggva í forskot Arsenal Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Karólína skoraði í sigri á Juventus Albert kom að marki í þriðja leiknum í röð Útivallarófarir Newcastle halda áfram „Ekki hrifinn af bauli eigin stuðningsmanna“ Genoa ekki tapað í fjórum leikjum í röð Íhuga að reka Glasner eftir reiðikastið Sjáðu hvernig United vann City og öll mörkin úr enska í gær Stefán Teitur sætti sig ekki við bekkjarsetu: „Það besta í stöðunni“ Mætti brjálaður í viðtal og hjólaði í stjórnina Pirrandi kvöld fyrir topplið Arsenal í Skírisskógi Sjá meira