Arsenal upp í þriðja sætið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Luiz og félagar fagna í dag.
Luiz og félagar fagna í dag. vísir/getty
Arsenal vann góðan 1-0 sigur á Bournemouth á heimavelli sínum í Lundúnum í dag.

David Luiz var hetja heimamanna en hann skoraði eina mark leiksins með skalla eftir hornspyrnu á níundu mínútu leiksins.

Gestirnir komust næst því að jafna metin í síðari hálfleik er Callum Wilson komst í færi en að öðru leyti gekk þeim illa að ógna Bernd Leno, markverði Arsenal.

Með sigrinum komst Arsenal upp fyrir Leicester, Burnley og Crystal Palace og situr nú í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar með fimmtán stig, einu á eftir Manchester City sem tapaði fyrir Wolves í dag.

Liverpool trónir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, 24 stig, eftir átta umferðir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira