Breski leikarinn Pierce Brosnan er staddur hér á landi en til hans sást á Konsúlat hótelinu í miðbæ Reykjavíkur í morgun. Þetta kemur fram á vef Fréttablaðsins.
Leikarinn er líklega hér á landi þar sem hann mun leika í Eurovision-mynd Will Ferrell sem framleidd er fyrir Netflix.
Brosnan er hvað þekktastur fyrir að leika njósnara hennar hátignar, James Bond, en er þó enginn viðvaningur þegar kemur að söngvamyndum en hann hefur sýnt stórkostlegan leik í Mamma Mia-myndunum sem byggðar eru á tónlist sænsku sveitarinnar ABBA, sem vann einmitt Eurovision árið 1974 með laginu Waterloo.
Tökur hefjast á næstunni á Húsavík en Will Ferrell og Rachel McAdams munu einnig fara með hlutverk í kvikmyndinni.
Íslenskir leikarar hafa einnig verið ráðnir til að fara með hlutverk í myndinni, þar á meðal Jóhannes Haukur Jóhannesson, Björn Stefánsson, Hannes Óli Ágústsson, Nína Dögg Filippusdóttir, Björn Hlynur Haraldsson og Ólafur Darri Ólafsson.
Hefurðu séð til Brosnan hér á landi? Láttu okkur vita eða sendu okkur myndir á ritstjorn(hja)visir.is.
Pierce Brosnan mættur til landsins

Tengdar fréttir

Fjöldi íslenskra leikara í Eurovision-mynd Will Ferrell sem verður að hluta tekin upp á Íslandi
Ferrell og Rachel McAdams leika íslenska söngvara.

Síðhærður Will Ferrell í gulum regnfötum við tökur á Eurovision-myndinni
Tökur eru hafnar á Eurovision-mynd bandaríska gamanleikarans Will Ferrell. Á myndum sem breskir fjölmiðlar birta frá tökustað í Edinborg í Skotlandi má sjá síðhærðan Ferrell í gulum regnfötum. Ferrell og Rachel McAdams leika íslenska söngvara í myndinni.

Fræddi Rachel McAdams um Birgittu Haukdal við tökur á Eurovision-myndinni
Björn Hlynur leikur fyrrverandi kærasta persónu Rachel McAdams.

Hjálpaði Ferrell og McAdams með íslenskan framburð fyrir Eurovision-myndina
Leikarinn Ari Freyr var boðaður á fund með leikurunum í London.

Pierce Brosnan sagður eiga að leika Íslending í Eurovision-mynd Will Ferrell
Hefur mikla reynslu af söngvamyndum.

Brosnan mun leika myndarlegasta mann Íslands í Eurovision-myndinni
Írski leikarinn Pierce Brosnan hefur verið ráðinn til að leika föður persónu Will Ferrell, mann að nafni Erik Erickssong en hann er sagður eiga að vera myndarlegasti maður Íslands.