Innlent

Systur unnu 26 milljónir hvor en tveggja milljóna­mæringa leitað

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tveir vinningshafar eru ófundnir.
Tveir vinningshafar eru ófundnir. Vísir/Vilhelm
Fimm vinningshafar voru með fyrsta vinning í áttfalda Lottó pottinum síðastliðinn laugardag og skiptu með sér rúmlega 131 milljón króna.

Það voru tvær lukkulegar systur með sitthvorn vinnings miðann sem mættu til Íslenskrar Getspár á mánudaginn. Önnur þeirra hafði keypt vinningsmiðann í Happahúsinu Kringlunni en hin á heimasíðu Getspár, lotto.is . Báðar hafa þær keypt þessa röð í mörg ár enda tengjast tölurnar fjölskyldunni órjúfanlegum böndum.

„Svo skemmtilega vildi til að önnur þeirra átti einmitt afmæli á laugardaginn og var nýbúin að setjast fyrir framan sjónvarpið þegar hún sá tölurnar birtast á skjánum. Hún ætlaði ekki að trúa sínum eigin augum og hringdi að sjálfsögðu strax í systur sína til að kanna hvort hún hefði ekki örugglega líka keypt sömu röð, sem og hún hafði gert,“ segir í tilkynningu frá Getspá.

Hlýtur hvor þeirra rúmlega 26 milljónir króna skattfrjálst. 

Þriðji vinningshafinn var með sínar tölur í áskrift en enn eru tveir ósóttir vinningar.  Annar keyptur í Hagkaup Furuvöllum og hinn Hjá Jóhönnu á Tálknafirði.

Getspá hvetur alla sem keyptu miða á þessum stöðum að skoða vel og vandlega hvort þar leynist vinningur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×