Svíþjóð afgreiddi England og hirti bronsið í þriðja sinn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Svíarnir fagna í dag.
Svíarnir fagna í dag. vísir/getty
Svíþjóð hirti bronsverðlaunin á HM kvenna í Frakklandi eftir 2-1 sigur á Englendingum í leiknum um þriðja sætið sem fór fram í Lyon í dag.

Árangurinn er jafn besti árangur Svía. Þeir náðu einnig í bronsið í Kína árið 1991 og þriðja sætinu í Þýskalandi árið 2011.







Svíarnir fengu draumabyrjun. Á elleftu mínútu skoraði Kosovare Asllani fyrsta markið. Eftir fyrirgjöf þá missti Alex Greenwood boltann fyrir fætur Kosovare sem brást ekki bogalistinn.

Tíu mínútum síðar var staðan orðinn 2-0. Sofia Jakobsson fékk að hlaupa óáreitt inn á teiginn og hún lét ekki bjóða sér það tvisvar. Hún kláraði færið einkar vel og staðan 2-0 fyrir Svíþjóð eftir tuttugu mínútur.







Englendingar voru þó ekki slegnir út af laginu. Á 31. mínútu minnkaði Fran Kirby meitn. Jill Scott átti þá frábæra sendingu inn á Kirby sem tók vel við boltanum og kláraði færið vel.

Einungis tveimur mínútum síðar virtust Englendingar vera búnir að jafna metin. Ellen White kom þá boltanum í netið en markið var dæmt af vegna þess að Ellen tók boltann með hendinni. Annan leikinn í röð sem jöfnunarmark er dæmt af White.

Staðan 2-1 í hálfleik en síðari hálfleikurinn var rólegri. Englendingar reyndu allt hvað þeir gátu til þess að jafna metin en allt kom fyrir ekki og Svíarnir unnu 2-1 sigur.







Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira