Íslenski boltinn

Börkur: Ólafur er besti þjálfari sem til er á Íslandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ólafur Jóhannesson þarf ekki að óttast um starf sitt á Hlíðarenda þrátt fyrir sex töp í níu leikjum og að liðið sé úr leik í bikarkeppninni.
Ólafur Jóhannesson þarf ekki að óttast um starf sitt á Hlíðarenda þrátt fyrir sex töp í níu leikjum og að liðið sé úr leik í bikarkeppninni. vísir/vilhelm
Edvard Börkur Edvardsson, formaður knattspyrnudeildar Vals, segir ekki koma til greina að reka Ólaf Jóhannesson sem þjálfara Vals þó svo illa gangi þessa dagana. Ólafur fær fullan stuðning frá stjórninni.

„Staða þjálfarans er traust og örugg. Hann hefur skilað fjórum titlum á síðustu fjórum árum og er einn sigursælasti þjálfari íslenskrar knattspyrnusögu. Hans staða er eins örugg og hægt er,“ segir Börkur ákveðinn.

„Þetta er besti þjálfari sem til er á Íslandi í dag og þó víðar væri leitað. Ég get ekki séð að það væri skynsamlegt að skipta honum út.“

Börkur Edvardsson.
Börkur hefur verið lengi í kringum fótboltann hjá Valsmönnum og þekkir það að berjast í mótvindi.

„Ég hef verið í knattspyrnudeildinni frá 2003 og hef alveg staðið með vindinn í fangið og farið yfir brekkur með félaginu. Við erum staddir á erfiðum stað sem við þurfum að vinna okkur út úr í sameiningu. Við treystum þessum strákum 100 prósent til þess að vinna sig út úr þessu. Það reynir á karakter manna og úr hverju þeir eru gerðir núna. Í mótlæti kynnist maður félögum sínum hvað best.“

Valur hefur ekki bara tapað sex af fyrstu níu leikjum sínum í deildinni heldur hefur gustað um félagið. Það voru talsverð læti í kringum mál Gary Martin framan af sumri og nú síðast í kringum Hannes Þór Halldórsson markvörð.

„Það hefur ekkert blásið inn í klúbbnum þar sem menn eru samstíga. Stundum byrjar að ganga illa og þá magnast hlutir upp og halda áfram. Við erum því miður í auga stormsins núna,“ segir formaðurinn sem er ekki sáttur við alla umfjöllun um félagið og þá virðist hann sérstaklega beina spjótum sínum að hlaðvarpi Dr. Football sem hann kvartaði meðal annars yfir á Twitter í gær.





Hannes Þór Halldórsson sýndi tilfinningar eftir leik í gær.vísir/vilhelm
„Þessi mál sem hafa verið að dynja yfir okkur af misgáfulegum podcöstum og einhverjum aðilum sem kalla sig höfðingja, king og allt þetta. Það truflar okkur ekkert frá degi til dags en hins vegar finnst mér umræðan almennt ekki nógu góð,“ segir Börkur og bætir við.

„Við erum að fá fullt af frábærum leikmönnum í deildina og mikill metnaður hjá öllum félögum en umfjöllunin er almennt frekar neikvæð og persónubundin og frekar til þess fallin að níða skóinn af náunganum frekar en að vera fagleg og uppbyggileg. Að sjálfsögðu má gagnrýna en mér finnst þessi umræða vera komin út fyrir öll velsæmismörk.

Umræðan er svolítið sóðaleg

„Mér finnst ósóminn kristallast í umræðunni um Hannes og hans mál. Að hann sé meiddur og fari í 2-3 daga frí kemur í raun engum við nema viðkomandi félagi og leikmanninum. Mér finnst umræðan svolítið sóðaleg og á lágu plani. Það er eitthvað sem við höfum ekki átt að venjast hingað til á Íslandi. Það er kannski fylgifiskur þess að vera með alla þessa miðla og alla þessa athygli á Íslandsmótinu.

„Það raðast inn misgáfulegir menn að fjalla um þetta og þar af leiðandi verður umræðan misgáfuleg. Það truflar okkur í sjálfu sér ekki og hefur ekki verið umræðan inn í félaginu. Við erum svolítið berskjaldaðir núna og auðvelt skotmark. Við eigum erfitt með að svara fyrir okkur á meðan illa gengur inn á vellinum.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×