Tíska og hönnun

Gali­a Lahav hannaði brúðar­kjól Alexöndru Helgu: Ó­dýrustu kjólarnir frá 760 þúsund

Sylvía Hall skrifar
Alexandra Helga var glæsileg á brúðkaupsdaginn.
Alexandra Helga var glæsileg á brúðkaupsdaginn. Instagram
Alexandra Helga Ívarsdóttir hefur birt mynd af sér í brúðarkjólnum sínum á Instagram en þar kemur fram að kjóllinn var sérsaumaður af ísraelska hönnuðinum Galia Lahav.

Á síðu hönnuðarins kemur fram að kjólar frá Galia Lahav kosti á bilinu 760 þúsund krónur upp í rúmlega tvær milljónir.



 
 
 
View this post on Instagram
A post shared by @alexandrahelga on Jun 19, 2019 at 4:08am PDT



„Algjörlega draumakjóllinn minn, alveg eins og ég vildi hafa hann á allan hátt. Ég elskaði hvert smáatriði og naut hverrar sekúndu í honum,“ skrifaði Alexandra við myndina af sér í kjólnum.

Kjólar sem Galia Lahav hannar hafa vakið athygli fyrir fíngerð smáatriði, íburðarmikla slóða og eru þeir oft opnir í bakið. Galia sjálf segir allar sínar hannanir vera einstakar, gerðar í samráði við brúðirnar sem mæta á vinnustofu hennar í mælingar. Það sé því sjaldgæft að finna tvo kjóla sem eru eins þar sem hún líti á hvern og einn sem listaverk.



 
 
 
View this post on Instagram
A post shared by @alexandrahelga on Jun 18, 2019 at 8:05am PDT


Tengdar fréttir

Gylfi og Alexandra gengu í það heilaga

Það hefur vart farið fram hjá neinum að brúðkaup Gylfa Þórs Sigurðssonar og Alexöndru Helgu Ívarsdóttur fór fram í dag. Engu var til sparað og var brúðkaupið haldið í stórkostlegu umhverfi við Como-vatn í norðurhluta Ítalíu.

Dagurinn töfrum líkastur að sögn Alexöndru Helgu

Alexandra Helga Ívarsdóttir segir að brúðkaupsdagur þeirra Gylfa Þórs Sigurðssonar knattspyrnukappa hafi verið töfrum líkastur. Turtildúfurnar létu pússa sig saman í blíðskaparveðri við Como vatn á Ítalíu á laugardaginn að viðstöddu fjölmenni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×