Fótbolti

Neymar hefur engan áhuga á að fara til Real

Anton Ingi Leifsson skrifar
Neymar í leik með PSG.
Neymar í leik með PSG. vísir/getty
Brasilíski framherjinn, Neymar, vill ekki ganga í raðir Real Madrid og vildi frekar velja Barcelona yfirgefi hann frönsku meistarana PSG.

Reiknað er með mikilli hreinsun hjá Real í sumar en síðasta tímabil var mikið vonbrigðartímabil. Neymar er því einn þeirra sem hefur verið nefndur til sögunnar.







Samkvæmt heimildum Sport þá hefur Brassinn hins vegar engan áhuga á að ganga í raðir Real og fyrrum félag hans í Barcelona sé líklegra fari hann frá París.

Frá því að Neymar kom til Parísar fyrir tveimur tímabilum hefur hann, nánast frá fyrsta degi, verið orðaður strax burt frá félaginu á nýjan leik.

Nú er hann hins vegar á meiðslalistanum eftir að hafa meiðst í landsleik og missir þvi af Suður-Ameríkukeppninni. Neymar lék með Barcelona frá 2013-2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×