Sport

Risaleikir í baráttunni um undanúrslitin

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
James Wade getur farið langt með að tryggja undanúrslitasætið með sigri annað kvöld
James Wade getur farið langt með að tryggja undanúrslitasætið með sigri annað kvöld vísir/getty
Það fer hver að verða síðastur að tryggja sig inn í úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar í pílukasti en þriðja síðasta kvöld deildarkeppninnar fer fram annað kvöld.

Michael van Gerwen hefur unnið úrvalsdeildina síðustu þrjú ár í röð, fjórum sinnum alls á ferlinum, og hann er efstur í deildinni eftir þrettán umferðir af sextán.

Van Gerwen er með eins stigs forskot á Rob Cross á toppi deildarinnar, en tvö stig eru fengin fyrir sigur og eitt fyrir jafntefli. Fjórir efstu að loknum 16 umferðum fara í undanúrslit.

Fjórtánda umferðin fer fram í Manchester Arena annað kvöld. Leikar hefjast með viðureign Rob Cross og Michael Smith, en Smith þarf að vinna þá þrjá leiki sem hann á eftir til þess að eiga einhverja möguleika á að komast í undanúrslitin. Þeir möguleikar eru þó gott sem engir.

Peter Wright er í sömu stöðu og Smith, ef hann tapar er ekki lengur möguleiki á að komast áfram. Andstæðingur Wright í Manchester er Mensur Suljovic. Sá er í fimmta sætinu með fimmtán stig, eins og James Wade og Gerwyn Price í þriðja og fjórða sæti.

Þeir Wade og Price mætast innbyrðis í Manchester. Wade er með betri „markatölu“ heldur en hans helstu keppniautar Price, Suljovic og Gurney og endar því alltaf efstur ef þeir eru jafnir á stigum. Ef Price vinnur viðureignina gegn Wade opnast baráttan um þriðja og fjórða sætið upp á gátt.

Suljovic er talinn vera svartur hestur í baráttunni um úrslitakeppnina. Hann spilaði sitt fyrsta heila tímabil í fyrra og sagði stressið hafa truflað sig þar. Í ár er hann „hundrað prósent betri.“

Daryl Gurney er einu stigi á eftir þremenningunum en hann fær það erfiða verkefni að mæta van Gerwen í Manchester. Eftir að hafa ekki unnið van Gerwen í sautján leikum hefur Gurney unnið síðustu tvo í röð. Hann veit því hvað hann þarf að gera til þess að vinna meistarann, en hvort hann geti gert það í þriðja sinn á eftir að koma í ljós.

Úrvalsdeildin í pílu verður áfram í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2, útsending hefst klukkan 18:00 annað kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×