Erlent

Maður skotinn til bana í Kaupmannahöfn

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Maður á fertugsaldri var í dag skotinn til bana í Helgolandsgade.
Maður á fertugsaldri var í dag skotinn til bana í Helgolandsgade. Vísir/getty
Maður á fertugsaldri var laust eftir klukkan 13.30 í dag skotinn til bana í miðborg Kaupmannahafnar. Árásin átti sér í Helgolandsgade nærri aðaljárnbrautarstöðinni.

Dönsk lögregluyfirvöld staðfestu með stöðuuppfærslu á Twitter að maðurinn væri látinn.

Að sögn lögreglunnar var nokkrum skotum hleypt af. Hinn grunaði í málinu á að hafa flúið af vettvangi á svartri Audi-bifreið.

Lögreglan segist að svo stöddu ekki vita hvers vegna skotið var á manninn en bætir þó við að enn sem komið er sé ekkert sem bendi til þess að skotárásin tengist átökum glæpagengja. 

Lestarferðir voru felldar niður í fimmtán mínútur eftir skotárásina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×