Innlent

Miklar um­ferðar­tafir í Hafnar­firði eftir um­ferðar­slys

Atli Ísleifsson skrifar
Unnið er að því að hreinsa veginn og verður hann opnaður á ný á næstu mínútum.
Unnið er að því að hreinsa veginn og verður hann opnaður á ný á næstu mínútum. Vísir/Nadine
Miklar umferðartafir eru nú í Hafnarfirði eftir að bíll og bifhjól rákust saman nærri hringtorginu á mótum Reykjanesbrautar og Lækjargötu.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðbogarsvæðisins féll bifhjólamaðurinn af hjólinu og slasaðist nokkuð, þó ekki alvarlega.

Unnið er að því að hreinsa veginn og verður hann opnaður á ný á næstu mínútum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×