Beittu hnífum við átök í miðbænum Kristín Ólafsdóttir skrifar 20. apríl 2019 08:21 Lögregla sinnti a.m.k. tveimur útköllum vegna slagsmála í miðbænum í nótt. Mynd tengist fréttinni ekki beint. Vísir/KOlbeinn tumi
Lögregla handtók tvo menn í miðborginni laust eftir klukkan fjögur í nótt en þeir höfðu beitt hnífum í átökum, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Mennirnir voru vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins. Um klukkan hálffimm barst lögreglu tilkynning um þrjá menn í tökum dyravarða í miðborginni en þeir höfðu tekið þátt í átökum. Lögregla fór að vettvangi og tók við úrlausn málsins. Þá sinnti lögregla fleiri málum tengdum skemmtanalífinu en lögreglumenn fóru að heimili í austurborginni um klukkan fjögur í nótt. Þar hafði íbúi komið heim af galeiðunni og sofnað ölvunarsvefni með pizzu í ofninum. Óskað var eftir aðstoð lögreglu að verslun í Kópavogi um klukka átta í gærkvöldi. Þar hafði maður reynt að hafa með sér kjötmeti án þess að greiða fyrir það. Um eittleytið í nótt fann lögregla svo fíkniefni og piparúða við húsleit í Breiðholti. Þá var tilkynnt um innbrot í tvær bifreiðar í gærkvöldi, annað í vesturborginni en hitt í austurbænum. Lögregla stöðvaði svo sex ökumenn í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Innlent Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Veður Vara við „perragleraugum“ Innlent Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Sjá meira