Enski boltinn

„Góður drengur og góður leikmaður en hentar mér ekki“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Drinkwater er líklega á leið burt í sumar.
Drinkwater er líklega á leið burt í sumar. vísir/getty
Maurizio Sarri, stjóri Chelsea, segir að Dany Drinkwater sé ekki í framtíðarplönum sínum hjá félaginu og hann hafi fengið að vita það í ágúst síðastliðnum.

Drinkwater hefur ekki komið við sögu í leik hjá Chelsea síðan í Samfélagsskildinum þann fimmta ágúst 2018 en hann var keyptur til Chelsea fyrir 35 milljónir punda frá Leicester.

„Hann hefur ekki spilað því hentar ekki leikkerfinu mínu og hvernig ég spila. Ég sagði honum það í águst. Hann sætti sig við það en ákvað að vera áfram svo hann vissi í hvað stefndi,“ sagði Sarri.

N'Golo Kante hefur náð að aðlagast stíl Sarri hjá Chelsea sem hann kom með frá Napoli en Sarri er ekki á því að Drinkwater geti gert það sama.

„Nei, ég held ekki. Það er mín skoðun. Kannski hef ég rangt fyrir mér en ég held það. Mín skoðun er mjög mikilvæg fyrir mig. Ég sagði við Drinkwater að skoða eitthvað annað því hann er ekki í mínum plönum.“

„Ég sagði við hann mína skoðun og mínar ástæður en hann ákvað að vera áfram. Ég á í góðu sambandi við hann því hann er góður drengur, góður leikmaður, en hann hentar mér ekki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×