Chelsea áfram eftir ótrúlegan leik á Brúnni

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn Chelsea fagna
Leikmenn Chelsea fagna vísir/getty
Chelsea slapp með skrekkinn gegn Slavia Prag eftir ótrúlegan markaleik á Stamford Bridge og spilar til undanúrslita í Evrópudeildinni.

Það tók Chelsea aðeins örfáar mínútur að komast yfir en það gerði Pedro eftir listilegt samspil þeirra bláklæddu. Á níundu mínútu kom svo annað mark Chelsea sem virtist ætla að valta yfir gestina.

Þriðja mark Chelsea gerði Olivier Giroud á 17. mínútu eftir sendingu frá Pedro. Þetta var hans tíunda mark í Evrópudeildinni í ellefu leikjum.

Gegn gangi leiksins settu gestirnir mark, Tomas Soucek skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu. Stuðningsmenn Slavia Prag gátu samt varla fagnað markinu því Pedro svaraði mínútu seinna með sínu öðru marki.

Pedro var því kominn með tvö mörk og stoðsendingu á fyrsta hálftímanum. Staðan var 4-1 fyrir Chelsea í hálfleik og samtals 5-1 í einvíginu.

Í upphafi seinni hálfleiks átti Slavia hins vegar ótrúlegar þrjár mínútur. Petr Sevcik skoraði með langskoti á 51. mínútu þar sem mátti setja spurningamerki við Kepa Arrizabalaga hvort hann ætti ekki að gera betur.

Sevcik bætti svo við þjáningar Arrizabalaga þremur mínútum seinna þegar hann skoraði með glæsiskoti rétt fyrir utan vítateiginn.

Tékknesku gestirnir gátu látið sig dreyma um ótrúlega endurkomu en það komu þó ekki fleiri mörk frá þeim og lauk leiknum 4-3, 5-3 samanlagt. Chelsea fer því í undanúrslit en Slavia Prag er úr leik.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira