Innlent

Vil­borg ráðu­neytis­stjóri þar til Ásta tekur við

Atli Ísleifsson skrifar
Vilborg Þ. Hauksdóttir.
Vilborg Þ. Hauksdóttir. heilbrigðisráðuneytið
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur sett Vilborgu Þ. Hauksdóttur til að gegna stöðu ráðuneytisstjóra tímabundið frá 1. apríl til loka maí. Ásta Valdimarsdóttir var nýverið skipuð ráðuneytisstjóri og mun Vilborg gegna stöðunni þar til Ásta hefur störf.

„Vilborg tekur við starfinu af Ólafi Darra Andrasyni sem hefur starfað sem settur ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu frá því það var stofnað 1. janúar síðastliðinn. Ólafur Darri hefur gegnt embætti skrifstofustjóra á skrifstofu hagmála og fjárlaga en tekur nú við nýju starfi sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landspítalans frá 1. apríl næstkomandi.

Vilborg Þ. Hauksdóttir er lögfræðingur að mennt. Hún hefur um árabil starfað hjá Norrænu ráðherranefndinni í Kaupmannahöfn en er nýlega komin aftur til starfa hjá Stjórnarráðinu. Vilborg hefur gegnt embætti skrifstofustjóra á skrifstofu ráðuneytisstjóra og verið staðgengill ráðuneytisstjóra undanfarna mánuði,“ segir í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu.


Tengdar fréttir

Ásta nýr ráðu­neytis­stjóri

Heilbrigðisráðherra skipað Ástu Valdimarsdóttur, núverandi framkvæmdastjóra hjá Alþjóðahugverkastofnuninni í Genf, ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðuneytinu til fimm ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×