Viðskipti innlent

Breiðþoturnar reyndust upphafið að falli WOW

Kristján Már Unnarsson skrifar
Skúli Mogensen þegar hann fagnaði fyrstu breiðþotunni vorið 2016. Þetta reyndist vera upphafið að endalokunum.
Skúli Mogensen þegar hann fagnaði fyrstu breiðþotunni vorið 2016. Þetta reyndist vera upphafið að endalokunum. Stöð 2/Steingrímur Þórðarson.
WOW-ævintýrið var ótrúleg sjö ára rússibanareið og ekki er nema ár liðið frá því fréttir birtust af því að WOW væri orðið stærra en Icelandair, mælt í farþegafjölda. Ris félagsins var bratt, en einnig fall þess. Saga WOW í stuttu máli var rakin í fréttum Stöðvar 2. 

Það var í nóvember 2011 sem Skúli Mogensen birtist eins og stormsveipur inn á flugmarkaðinn með WOW og hóf að selja farseðla til tólf borga í Evrópu. Skúli sagðist þá veðja á aukningu ferðamanna til Íslands. 

Skúli í viðtali við Stöð 2 þann 23. nóvember 2011 þegar WOW tók til starfa með því að selja farseðla.Mynd/Stöð 2.
„Við höfum fylgst með ferðamannaiðnaðinum í svolítinn tíma og klárlega litið á það sem mjög áhugavert og skemmtilegt tækifæri,“ sagði Skúli þá á Stöð 2. 

Hann var þá þegar meðal ríkustu manna landsins, hafði hagnast á hugbúnaðarfyrirtækinu OZ, og var hrein eign hans og þáverandi eiginkonu metin á tæpa átta milljarða króna. 

Fyrsta flug WOW var þann 1. júní 2012, byrjað var með tvær Airbus A320 leiguvélar, og það tók Skúla aðeins fimm mánuði að gleypa Iceland Express, sem gerðist í október 2012. 

Húmór og léttleiki einkenndu WOW. Fyrstu vélarnar voru kallaðar WOW Force One og WOW Force Two.Mynd/Vísir.
„Með þessu er orðið mjög öflugt lággjaldaflugfélag,“ sagði hann í viðtali um yfirtökuna á Iceland Express. 

Næstu þáttaskil urðu snemma árs 2015 þegar WOW eignaðist sínar fyrstu þotur, af gerðinni Airbus A321. Fagnað var á Reykjavíkurflugvelli, með forsetafrú og allsherjargoða. 

„Vél númer tvö er að koma um helgina. Þá verðum við með sex flugvélar hérna,“ sagði hann við móttökuna, en koma vélarinnar markaði jafnframt upphaf flugs til austurstrandar Bandaríkjanna.

Fyrsta þotan sem WOW eignaðist, Airbus A321, fékk heiðursmóttöku slökkviliðsins á Reykjavíkurflugvelli í mars 2015.vísir/vilhelm
En Skúli var bara rétt að byrja, hann vildi líka komast til vesturstrandar Ameríku og Asíuflug, og vorið 2016 kynnti hann fyrstu breiðþotuna, Airbus A330, dýrustu og stærstu áætlunarvél íslenska flugflotans. 

„Listaverðið er um 30 milljarðar þannig að hvert og eitt sæti kostar 90 milljónir eða rúmlega það. Þannig að það er eins gott að þetta sé fullt,“ sagði Skúli um borð með þáverandi ferðamálaráðherra sér við hlið, Ragnheiði Elínu Árnadóttur. 

Fyrsta breiðþota WOW-air, Airbus A330, á Keflavíkurflugvelli vorið 2016.Stöð 2/Steíngrímur Þórðarson.
Og breiðþoturnar áttu eftir að verða þrjár. Skúli hefur síðar viðurkennt að þetta hafi verið stóru mistökin.

Allt virtist þó ganga vel, farþegatölur mældu WOW stærra en Icelandair fyrir ári, og WOW var þá komið með 22 þotur. 

En ekki var allt sem sýndist. Síðastliðið sumar hóf WOW skuldabréfaútboð til að treysta fjárhag félagsins og fengust með því nærri sjö milljarðar króna. 

Skúli í hópi starfsmanna í landganginum þegar fyrsta breiðþotan var kynnt.Stöð 2/Steingrímur Þórðarson.
Í nóvember var tilkynnt að Icelandair væri að kaupa WOW, en hætti við þremur vikum síðar. Indigo Partners kom til sögunnar, WOW fækkaði þotum úr 20 niður í 11, sagði upp starfsfólki, svo hætti Indigo við í síðustu viku. Icelandair kom þá aftur að borðinu en sá enga glætu. 

„Rekstur og fjárhagsstaða WOW er með þeim hætti að við treystum okkur ekki til þess að halda áfram með málið og ákváðum að slíta viðræðum,“ sagði Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, síðastliðinn sunnudag. 

Gestir WOW-air og starfsmenn fylltu Airbus A330-breiðþotuna þegar komu hennar var fagnað í júní 2016.Stöð 2/Steingrímur Þórðarson
En Skúli gafst ekki upp, kröfuhafar féllust í fyrradag á að gefa sitt eftir gegn því að fá hlutabréf. 

„Í sjálfu sér er magnað að okkur hafi tekist að klára þetta svona hratt,“ sagði hann við Stöð 2. 

Það vantaði bara eitt upp á: 

„Þessu lýkur ekki fyrr en við fáum inn aukafjárfesta.“ 

Þeir fjárfestar fundust ekki í tæka tíð. 

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

WOW ætlar að fljúga til tólf áfangastaða

Lággjaldafélagið WOW Air mun hefja flug til og frá Íslandi um mánaðarmótin maí-júní næstkomandi. Sala á miðum er þegar hafin á vef félagsins.

WOW air kaupir Iceland Express

Flugfélagið WOW air hefur keypt rekstur Iceland Express. Frá þessu var greint á starfsmannafundi sem hófst klukkan fjögur. Þær flugleiðir sem Iceland Express flýgur nú verða þá farnar undir merkjum WOW air. Það er Skúli Mogensen sem á og rekur WOW air. Flugfélagið hóf störf í vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×