Innlent

Ógnandi í flugstöðinni með stolið vegabréf

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þetta er í annað skiptið sem maðurinn er stöðvaður með skilríki annars manns.
Þetta er í annað skiptið sem maðurinn er stöðvaður með skilríki annars manns. FBL/Ernir
Lögreglumenn flugstöðvardeildar á Keflavíkurflugvelli handtóku nýverið karlmann sem hafði framvísað stolnu vegabréfi í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum.

Maðurinn var að reyna að innrita sig í flug til Toronto í Kanada þegar grunur vaknaði um að ekki væri allt með felldu varðandi vegabréfið. Maðurinn reiddist mjög vegna afskiptanna og öskraði hótanir að lögreglumönnum og starfsfólki á innritunarborði með ógnandi hætti, að því er segir í tilkynningu.

Þegar maðurinn ræddi við lögreglu viðurkenndi hann að hafa verið að reyna að ferðast á stolnu vegabréfi. Kvaðst maðurinn hafa keypt vegabréfið í Hollandi á 500 evrur. Hann var því handtekinn og fluttur á lögreglustöð.

Þetta er í annað skiptið sem maðurinn er stöðvaður með skilríki annars manns. Málið er í hefðbundnu ferli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×