Menning

Heimslist og nýlunda Gunnlaugs

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar
Gunnlaugur Blöndal fyrir framan eitt af sínum eftirsóttu listaverkum. Verk hans vekja enn athygli og viðbrögð.
Gunnlaugur Blöndal fyrir framan eitt af sínum eftirsóttu listaverkum. Verk hans vekja enn athygli og viðbrögð.
Nafn Gunnlaugs Blöndals er nú á allra vörum eftir að nekt í málverkum hans misbauð einhverjum kvenkynsstarfsmönnum Seðlabankans sem þurftu að hafa þau fyrir augum þegar þær áttu fund með karlkynsyfirmönnum á skrifstofu þeirra. Niðurstaðan var sú að málverkunum var pakkað niður og þeim komið fyrir í geymslu svo þau myndu ekki valda frekari andlegum sársauka en orðið var.

Þótt enginn íslenskur myndlistarmaður sé þessa stundina jafn umræddur og Gunnlaugur, sem lést árið 1962, þá er langt í frá að allir viti hver hann var og hvaða áhrif hann hafði á sínum tíma á íslenska myndlist.

Konumynd frá árinu 1942. Myndir eins og þessi eru mjög eftirsóttar.Listasafn Íslands
Gunnlaugur fæddist árið 1893 á Sævarlandi í Þistilfirði. Foreldrar hans voru Björn Blöndal læknir og Sigríður Möller. Gunnlaugur stundaði teikninám og nam málaralist í Kaupmannahöfn og Ósló. 

Hann kynnti sér strauma og stefnur í málaralist í Þýskalandi, Vín og á Suður-Ítalíu. Árið 1923 fór hann til Parísar og stundaði þar nám og varð fyrir miklum áhrifum af franska skólanum og þau áhrif enduróma í list hans. Árið 1940 kom Gunnlaugur alkominn til Íslands.

Það munúðarfulla og upphafna

Árið 2006 hélt Listasafn Íslands sýningu á verkum hans og í tilefni af því kom út bók um listamanninn og þar skrifaði Harpa Þórsdóttir um listamanninn. Harpa er nú safnstjóri Listasafnsins en safnið á 38 verk eftir listamanninn. Þær myndir Gunnlaugs sem prýða þessa síðu eru allar í eigu safnsins.

Spurð hvað einkenni verk Gunnlaugs segir Harpa:

„Þegar ferill hans er skoðaður í heild sinni þá sést ákveðinn rauður þráður í málverkum hans og tækni sem er það munúðarfulla og upphafna, óljós mörk forms, oft þunnmálaðir litafletir sem tóna í bakgrunninum og á myndefninu sjálfu. En einnig teikning. Gunnlaugur var fær teiknari og portrettmálari. Það er mikil fjölbreytni í málverkum hans, ólíkt myndefni sem hann fékkst við og notkun pastel lita var ríkjandi hjá honum framan af.“

Siglufjörður veitti Gunnlaugi innblástur og þaðan er þessi mynd frá 1940.Listasafn Íslands
„Landslagsmyndir hans eru margar hverjar framan af hugljúfar en þegar á líður kemur meiri hraði, litir verða sterkari og pensilstrokurnar kröftugri. Hann málaði myndir frá Siglufirði þar sem síldarþemu voru áberandi og málaði sömuleiðis margar myndir af bátum í höfnum.

Hann fékk opinber verkefni, málaði portrett af Alexandrínu drottningu á skautbúningi og af Kristjáni X. 1938 og 1939 og árið 1944 var hann fengin til að mála mynd af Þjóðfundinum árið 1851.“

Maður og kona. Á þessari sjálfsmynd er listamaðurinn með konu, sennilega fyrri konu sinni, við trönurnar árið 1920.Listasafn Íslands
“Módelmyndir hans sköpuðu honum síðan sérstöðu hér á landi og hann málaði þær alla tíð. Nektarmyndir hans vöktu hneykslan á sínum tíma en urðu fljótlega þær vinsælustu og eru enn í dag. Þær seldust ekki bara upp á sýningum heldur þótti eftirsóknarvert að sitja fyrir hjá honum.

Gunnlaugur er einn þeirra íslensku listamanna sem hafa þessa sterku tengingu við franska skólann.

Hann flutti þetta klassíska myndmál til Íslands, bjó í París í um fjögur ár á þriðja áratug síðustu aldar þegar kaffihúsin á Montparnasse hýstu skáld, listamenn og rithöfunda. Bóheminn.

Það var ekki verið að mála módelmyndir, naktar fyrirsætur, hér á landi með sama hætti og Gunnlaugur gerði.

Nektarmyndir hans voru heimslist og nýlunda hér á landi. Hann var einstakur á sinn hátt.“

Verkið Frönsk leikkona er frá árinu 1933 og undir greinilegum áhrifum frá franska skólanum.Listasafn Íslands
„Seinni eiginkona Gunnlaugs, Elísabet, sagði að myndir hans hefðu verið svo eftirsóttar að þær hefðu ekki fengið að þorna á trönunum. Honum barst mikið af myndapöntunum og var afkastamikill,“ segir Harpa.

Grunar að Gunnlaugi sé skemmt

Þegar Harpa er spurð hvort sú athygli sem beinst hefur að verkum Gunnlaugs sé ekki það besta sem geti hent látinn listamann segir hún: 

„Mig grunar að Gunnlaugi sé skemmt. Sjálf tek ég fagnandi allri umræðu um myndlist, og sú umræða má alveg snúast um smekk.

Ég held líka að við höfum gott af því að taka þessa umræðu og læra að horfa á myndlist. Okkur má þykja ýmislegt um listaverk, þannig á það að vera.

Myndlistin þarf að fá þetta óritskoðaða rými, sem á þó sín mörk, en það er ekkert ósæmilegt við myndir Gunnlaugs Blöndals, þar er ekkert siðleysi í gangi.“


Tengdar fréttir

Nektarlist í Seðlabanka komið fyrir í geymslu

Eftir skoðun innan Seðlabankans varð niðurstaða stjórnenda sú að málverk sem innihalda nekt eftir Gunnlaug Blöndal skuli fjarlægð úr almennum vinnusvæðum og skrifstofum yfirmanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×