Ísland upp um eitt sæti á styrkleikalista FIFA Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. október 2019 09:45 Íslendingar eiga tvo leiki eftir í undankeppni EM 2020. vísir/vilhelm
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fer upp um eitt sæti á styrkleikalista FIFA og er í því fertugasta. Íslendingar spiluðu tvo leiki í undankeppni EM 2020 fyrr í þessum mánuði. Ísland tapaði með minnsta mun fyrir heimsmeisturum Frakklands, 0-1, og vann svo Andorra, 2-0. Ísland er þriðja besta Norðurlandaþjóðin samkvæmt styrkleikalistanum. Danmörk er í 14. sæti, fjórum sætum ofar en Svíþjóð. Norðmennirnir hans Lars Lagerbäck fara upp um tvö sæti og eru í því 45. Finnar eru tíu sætum neðar og Færeyingar eru í 110. sæti. Íslendingar fóru niður um fimm sæti síðast þegar styrkleikalistinn var gefinn út og voru í 41. sæti hans. Íslenska liðið hefur hæst komist í 35. sæti listans á þessum ári. Staða efstu fjögurra liða á listanum er óbreytt. Belgía er enn á toppnum, Frakkland í 2. sæti, Brasilía í því þriðja og England í því fjórða. Tyrkir, næstu mótherjar Íslendinga í undankeppni EM, fara upp um fjögur sæti á listanum og eru í 32. sæti. Moldóva, sem Ísland mætir í síðasta leik sínum í undankeppni EM, er í 175. sæti listans. Liechtenstein, sem Helgi Kolviðsson þjálfar, er í 181. sæti listans.Styrkleikalistann í heild sinni má sjá með því að smella hér.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Sjá meira