Höfum tekið miklum framförum í þessari undankeppni Kristinn Páll Teitsson skrifar 3. júlí 2018 11:30 Craig Pedersen landsliðsþjálfari.
Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, var skiljanlega afar svekktur þegar Fréttablaðið sló á þráðinn til hans í gærkvöldi. Tap gegn heimamönnum gerði út um vonir Íslands á að komast á HM. „Augljóslega eru allir afar svekktir en við gerðum margt jákvætt í dag, fengum mörg góð skot en náðum ekki að refsa þeim þegar færi gáfust. Við lokuðum oft vel á þá og komumst yfir en þeir hittu vel. Við hefðum þurft að nýta okkar færi til að geta unnið lið af þessum styrkleika.“ Hann segir að liðið hafi liðið fyrir skort á reynslu á lokaleikhlutanum en Ísland lék án Jóns Arnórs Stefánssonar og Pavels Ermolinskij í þessum leikjum. „Við vorum inni í báðum leikjunum í fjórða leikhluta en á lokasprettinum hrundi leikur okkar. Það sást í febrúar hvað leikmenn eins og Jón Arnór og Pavel gera fyrir þetta lið. Jón er auðvitað, líkt og Pavel, frábær varnarmaður en hann tekur pressu af Martini í sóknarleiknum,“ segir Craig sem er ánægður með framlag Jóns Axels Guðmundssonar sem fékk í fyrsta sinn stórt hlutverk í keppnisleik. „Hann er stór og sterkur af bakverði að vera sem gerir okkur auðveldara fyrir í vörn, hann kann að spila gegn stærri leikmönnum ásamt því að vera góður sóknarmaður.“ Craig segir að hann sé strax farinn að hugsa að því komast á Eurobasket 2021. „Ég er með samning hjá KKÍ og er afar metnaðargjarn fyrir þennan hóp sem er að koma upp hjá landsliðinu. Við vorum með augastað á EuroBasket 2021 og höfum tekið miklum framförum sem sést kannski ekki endilega á stigatöflunni. Það er margt sem má bæta og við munum vinna í því að bæta okkur.“
Körfubolti Mest lesið Sótillur eftir tapið: „Sóa fyrirhöfn heillar þjóðar“ Fótbolti FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Fótbolti Hvers vegna tekur Halldór ekki strax við Val? Íslenski boltinn Sölvi reiður þrátt fyrir sigur Fótbolti Veikindi herja á norska liðið Fótbolti Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Fótbolti „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Fótbolti Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Fótbolti Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Fótbolti 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Körfubolti Fleiri fréttir Berglind næststigahæst á EM 16 ára Berglind mögnuð er Ísland náði sögulegum árangri Elvar snýr aftur til Litháens Jón Axel spilar á Kanaríeyjum Patrick Ewing fékk aftur starf á gólfinu í NBA-deildinni Valsmenn fá til sín stigakóng síðasta tímabils „Maður hefur spilað körfubolta lengi“ „Komið með þessa NBA karla, við erum klárir“ Uppgjör: Bretland – Ísland 86-88 | Enn einn dramatískur sigur Íslands og HM draumurinn lifir Íslensku stelpurnar unnu stórkostlegan sigur á Serbum Sixers að blanda sér í baráttuna um LeBron James Prófa nýja körfuboltareglu með einu vítaskoti „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Elvar: „Við vorum flatari og skrefinu eftir á“ Uppgjör: Ísland - Ítalía 83-102 | Strákarnir réðu ekki við skotsýningu Ítala Jaylen Brown til Philadelphia 76ers Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Sjá meira