Haustspá Siggu Kling – Steingeitin: Þessi umhyggja þín mun samt margborga sig 7. september 2018 09:00
Elsku Steingeitin mín það er svo sannarlega alltaf nóg að frétta í kringum þig og nú er það spurning um að nenna og stökkva á það sem þú vilt í raun og veru gera. Þú þarft að byggja upp orku með öllum úrræðum, því að orkuleysi lamar hugann og hugmyndirnar sem þú hefur um svo margt verða ekki að veruleika. Ef þú skoðar orðið hugmynd, þá er það mynd í huganum og það er svo mikilvægt að taka strax skrefið í að framkvæma þau boð sem þú færð því þetta kallast einnig hugboð, er það ekki flott? Þú þarft hugsa mikið og passa upp á manneskjur sem eru nátengdar þér og mikil orka og kraftur fer í þetta. Þessi umhyggja þín mun samt margborga sig því að þú átt eftir að fá svo góðar fréttir af þeim sem eru þér næstir og þú verður svo sannarlega ánægður með fjölskyldu þína. Það er nefnilega þannig þegar þú gefur af þér þá færðu meira og þetta tímabil sem þú ert að fara í gegnum núna mun breyta lífi þínu jafnvel að eilífu og þá er ég að segja til hins betra. Það mikilvægasta núna er að hafa gaman í vinnunni, vera frumkvöðull og breyta hefðum, það eru svo margir nýir möguleikar búnir að opnast fyrir þér og það mun koma þér á óvart hversu sterk manneskja þú ert. Þú ert tvöhundruðfalt sterkari en þú heldur svo láttu ekki áhyggjur af framtíðinni eyðileggja daginn í dag. Það er í eðli þínu að vilja að líta vel út, en það eru engar skyndilausnir til svo klappaðu þér bara á bakið því að þú ert með meiri útgeislun en flestir, hefur svo sannfærandi tjáningu svo notaðu hana meira og það mun þá koma þér á óvart hvert það færir þig. Gömul hjartasár og erfiðleikar læðast að þér öðru hvoru en það sem er gamalt er búið og þá er það ekki til svo steinhættu að hugsa um það því að það dregur úr þér máttinn. Alls ekki gefa loforð sem að þú getur ekki staðið við og ekki segja kannski þegar er verið að bjóða þér eða biðja þig um eitthvað. Já eða nei er krafturinn sem mun drífa þig áfram, alls ekki fara milliveginn því að þú getur ekki látið öllum líka vel við þig, „og hverjum er ekki skítsama um það“ ættir þú að segja við sjálfan þig. Þér á eftir að ganga mjög vel á framabrautinni svo skoðaðu þú vel hvað er frami fyrir þér. Þú ert fyrirmynd svo margra og það þýðir svo sannarlega að þú sért nú þegar búinn að ná langt. Skilaboðin til þín hjartagullið mitt er að hika er það sama og tapa, gömul og góð setning sem á svo sannarlega vel við núna.Frægar Steingeitur: Guðjón Pétur Lýðsson markakóngur, Svava Johansen í Sautján, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, dr. Kristín Ólafsdóttir og Davíð Oddsson, Jón Gnarr, Elvis Presley, Gunnar Þórðarson, Tómas Guðbjartsson læknahetja, Lovísa Tómas, Dorrit Moussaieff forsetafrú, Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir, Jesús og Simmi á Fabrikkunni, Óttar Proppé, Ingveldur Ægissdóttir módir og kvunndagshetja, Hendrika Waage hönnuður, Laddi, Jóhann K. Jóhannsson fréttamaður.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Lífið Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Lífið Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Lífið Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Bíó og sjónvarp Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Bíó og sjónvarp 50+: Fólk upplifir sig yngra en áður – og þróunin heldur áfram Áskorun Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Margaret Kerry er látin Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Sjá meira