Á sérstakan sess í huga þjóðarinnar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 10. janúar 2018 10:15 “Ég er dálítið búinn að velta mér upp úr þessum tíma,” segir Gunnar Þór um árið 1918.” Vísir/Stefán
Ég skrifaði bók um fyrri heimsstyrjöldina og er núna að vinna að bók um fullveldið svo ég er búinn að fara í gegnum margar heimildir frá þessum tíma,“ segir Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur sem fjallar um hag íslensku þjóðarinnar árið 1918 á fræðslufundi Vitafélagsins í kvöld og byrjar klukkan 20 í húsnæði Sjóstangaveiðifélags Íslands að Grandagarði 18. „Það urðu svo dramatískir atburðir þetta ár, frostaveturinn upp úr áramótunum og Kötlugosið og spænska veikin um haustið. Svo kemur fullveldið ofan á í lokin.“ Fyrri heimsstyrjöldinni lauk líka þetta ár, það er fimmta atriðið sem Gunnar Þór ætlar að nefna. „Árin 1917 og 18 voru erfið hér á Íslandi vegna stríðsins og siglingateppu, skorts á vörum og skömmtunar á matvælum. Allt hafði það áhrif en frostið, gosið og spænska veikin eru samt enn dramatískari. Ég er búinn að fara í gegnum blöð og ótal greinar, minningar fólks sem eru þessir atburðir ofarlega í huga og þar er líka áberandi hvernig fólk þessu slær öllu saman.“ Frostaveturinn náði til allra byggða landsins en var enn harðari fyrir norðan en sunnan, að sögn Gunnars Þórs. „Fyrir norðan fór frostið niður í 37-8 gráður en í um 25 hér sunnanlands. Svo vorum við að kvarta og kveina um daginn í 5-6 stiga frosti! En þessi fimbulkuldi stóð bara í þrjár vikur. Það var kominn hiti á mæli hér í Reykjavík í lok janúar en í minningum fólks var hér eilífðarkuldi.“ Svo kom Kötlugosið um haustið og spænska veikin um svipað leyti. „Kötlugosið hafði fyrst og fremst áhrif í Skaftafellssýslum og þegar maður les lýsingar fólks á myrkrinu, öskufallinu og vatnsflaumnum skynjar maður hvers konar hamfarir það voru. Alger mildi að enginn skyldi deyja. Það er skiljanlegt að þessir atburðir hafi orðið þeim sem upplifðu þá eftirminnilegir. Fólk sá gosið frá Reykjavík, það fór upp á Skólavörðuholt og sá strókinn þaðan.“ Gunnar Þór kveðst reikna með þriggja kortéra erindi. „Mér skilst að það sé venjan,“ segir hann. „Svo kemur kaffipása og eftir það verður spjallað. Ég vona að þar komi einhverjar frásagnir fram líka og þetta verði dálítið skemmtilegt þó auðvitað séu umræðuefnin af alvarlegum toga.“ Í hvaða blöð skyldi Gunnar Þór helst ná sér í heimildir um ofangreinda atburði? „Það var gefinn út fjöldi blaða á Íslandi á þessum tíma, líklega hátt í tuttugu, með vikublöðunum. Morgunblaðið, Vísir og Fréttir voru dagblöðin þrjú á tímabili, svo var Lögrétta, Ísafold og Landið svo eitthvað sé nefnt. Meira að segja Vestmannaeyingar gáfu út blað á þessum tíma, það hét Skeggi. Þetta var gullöld blaðaútgáfu.“ Í lokin minnir Gunnar Þór á að tvær merkilegar, íslenskar skáldsögur hafi haustið 1918 og atburði þess í bakgrunni, Sælir eru einfaldir eftir Gunnar Gunnarsson og Mánasteinn eftir Sjón.
Menning Mest lesið „Spurði hversu mörgum stelpum hann væri búinn að senda þessa línu“ Makamál Brynja og Þórhallur kveðja Nýlendugötuna Lífið Atli Örvarsson hlaut BAFTA verðlaunin Lífið Dulin blessun að missa Baðhúsið Lífið „Oft sést ekki nógu vel út á við það sem gerist á bakvið tjöldin“ Lífið Stjörnulífið: Allt á útopnu í sólinni Lífið „Það var alltaf draumur hjá honum að heimsækja Ísland aftur“ Lífið 23 hvolpar á heimili í Þorlákshöfn Lífið Fjölmennt í framboðsteiti Arnars Þórs í Iðnó Lífið Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni Lífið Fleiri fréttir Vilja vekja áhuga ungu kynslóðarinnar á töfrum klassískrar tónlistar Hildur, Rán og Ásta fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Bein útsending: Setning Barnamenningarhátíðar Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Nýr safnstjóri Listasafnsins á Akureyri Þau eru tilnefnd til Maístjörnunnar Eigandinn heltekinn af skrímslaverkunum hans Sindra Kveður Tjarnarbíó: „Of lítið og of seint“ Þessi voru tilnefnd til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Vatnið alltaf heillað þrátt fyrir mikla hræðslu Stórglæsilegar stjörnur á Eddunni Á ferð með mömmu hlaut níu Eddur Ætlar aldrei að setjast í helgan stein „Kannski var ég ekki að pæla í algebru því mamma mín var að deyja“ Listamaðurinn á bak við Áfanga í Viðey látinn Eliza hlaut heiðursverðlaun Fyrsta alþjóðlega barokkhátíðin í Reykjavík Gerður Kristný hlýtur virt norsk bókmenntaverðlaun Hættir sem leikhússtjóri og hefur störf í ráðuneytinu Myndaveisla: Sex listrænum áratugum fagnað með glæsilegri sýningu Amanda og Brák meðal handhafa Íslensku myndlistarverðlaunanna Kaflaskil í íslenskri menningarsögu Hjartnæm stund Guðna með Herði og Kára Grindavíkurbær heiðursgestur Menningarnætur 2024 Kristín Ómarsdóttir meðal þeirra sem hlaut Fjöruverðlaunin Síðasta verk Nóbelsverðlaunahafans gefið út gegn hans eigin óskum Listræn og lífleg starfsemi í gömlu Áburðarverksmiðjunni Myndaveisla: Yfir þúsund manns í listrænu fjöri í Hveragerði Myndaveisla: Þotulið hönnunarbransans fagnaði með stæl Myndaveisla: Fullt út úr dyrum og næstum uppselt fyrir opnun Sjá meira