„Þetta er stórstökk fyrir Ragnar sem sat á þessum tíma fyrir ári síðan í sjöunda sæti listans og árið 2016 var hann í átjánda sæti,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Fíbút, sérfræðingur Vísis í bóksölunni.
„Þá má jafnframt segja að Auður Ava sé í liði með Ragnari í hástökkvaradeildinni, bók hennar, Ungfrú Ísland, situr nú í fimmta sæti listans. En fyrir tveimur árum síðan, þegar Ör kom út, þá sat hún í sextánda sæti listans þessa síðustu viku fyrir jól.“
Forlagið ber höfuð og herðar yfir keppinauta sína
Nú, þegar staðan liggur að verulegu leyti fyrir hvað þessa jólabókatíð varðar er forvitnilegt að skoða dreifingu mest seldu bókanna á milli útgefenda. Þetta er ekki síst árlegt kapphlaup þeirra á milli. Vísir bað Bryndísi að líta sérstaklega til þessa.
„Það verður forvitnilegt að sjá hvort nýstaðfestar aðgerðir ríkisstjórnarinnar muni hafa áhrif á þessa stöðu að ári, en þær koma til framkvæmda nú eftir áramót og fela í sér 25 prósenta endurgreiðslu á framleiðslukostnaði til útgefenda, líkt og kvikmynda- og tónlistabransinn hefur þegar fengið. Þessar endurgreiðslur nýtast þó ekki fyrir jólabækurnar í ár,“ segir Bryndís.
Bóksala nær hámarki nú um helgina
En, heilt yfir segir Bryndís söluna dreifast ágætlega á fjölmarga titla og áhyggjur manna yfir því að bækur yrðu uppseldar sökum þess hversu margar eru prentaðar erlendis, virðast hafa verið óþarfar.„Jólabókasalan fór snemma af stað í ár en hún eykst jafnan stöðugt alveg fram að Þorláksmessu og nær væntanlega hámarki nú í kringum helgina. Mér hefur þó sýnst þróunin síðustu ár vera í þá átt að kaupendur séu almennt fyrr á ferð í gjafkaupum sínum, Þorláksmessa er ekki lengur sami risadagurinn og fyrir 15 - 20 árum, þó vitanlega sé dagurinn enn þá stærsti dagur ársins hjá íslensku verslunarfólki,“ segir Bryndís hjá Félagi bókaútgefenda.
En, svona lítur sjóðheitur listinn út:
Topplistinn - söluhæstu titlar Bóksölulistans 12.-18. desember
- Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason / Forlagið - Vaka Helgafell
- Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir / Veröld
- Þorpið - Ragnar Jónasson / Veröld
- Siggi sítróna - Gunnar Helgason / Forlagið - Mál og menning
- Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir / Benedikt bókaútgáfa
- Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson / Útkall
- Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson / Forlagið - Mál og menning
- Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir / Veröld
- Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason / Forlagið - JPV
- Orri óstöðvandi - Bjarni Fritzson / Út fyrir kassann
- Krýsuvík - Stefán Máni / Sögur útgáfa
- Aron - sagan mín - Aron Einar Gunnarsson og Einar Lövdahl / Fullt tungl
- Skúli fógeti - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir / Forlagið - JPV
- Fíasól gefst aldrei upp -Kristín Helga Gunnarsdóttir / Forlagið - Mál og menning
- Flóra Íslands - Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg, Þóra Ellen Þórhallsdóttir / Forlagið - Vaka Helgafell
- Beint í ofninn - Nanna Rögnvaldardóttir / Forlagið - Iðunn
- Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur - Þórður Snær Júlíusson / Veröld
- Henny Hermanns – Vertu stillt! - Margrét Blöndal / Bjartur
- Steindi í orlofi - Steinþór Hróar Steinþórsson / Sögur útgáfa
- Vísindabók Villa - Truflaðar tilraunir - Vilhelm Anton Jónsson / Forlagið - JPV
Íslensk skáldverk
- Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason
- Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir
- Þorpið - Ragnar Jónasson
- Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir
- Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason
- Krýsuvík - Stefán Máni
- Lifandilífslækur - Bergsveinn Birgisson
- Stormfuglar - Einar Kárason
- Svik - Lilja Sigurðardóttir
- Ástin, Texas - Guðrún Eva Mínervudóttir
Þýdd skáldverk
- Dag einn í desember - Joise Silver
- Jól í Litla bakaríinu við Strandgötu -Jenny Colgan
- Alein - Mary Higgins Clark
- Sagnaseiður - Sally Magnusson
- Saga tveggja borga - Charles Dickens
- Lífið heldur áfram - Winne Li
- Galdra-Manga - Tapio Koivukari
- Þurrviðri - Peter Robinson
- Lífið heldur áfram - kilja - Winne Li
- Þorsti - Jo Nesbø
Ljóð & leikrit
- Hjarta landsins - Ómar Ragnarsson
- Vammfirring - Þórarinn Eldjárn
- Sálumessa - Gerður Kristný
- Haustaugu - Hannes Pétursson
- Rof - Bubbi Morthens
- Ljóð muna ferð - Sigurður Pálsson
- Smáa letrið - Linda Vilhjálmsdóttir
- Því miður - Dagur Hjartarson
- Að ljóði muntu verða - Steinunn Sigurðardóttir
- Fiðrildi í rökkrinu - Magnús Skúlason
Barnabækur - skáldverk
- Siggi sítróna - Gunnar Helgason
- Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson
- Orri óstöðvandi - Bjarni Fritzson
- Fíasól gefst aldrei upp - Kristín Helga Gunnarsdóttir
- Hvolparnir bjarga jólunum - Hvolpasveitin
- Lára fer til læknis - Birgitta Haukdal
- Miðnæturgengið - David Walliams
- Jólasyrpa 2018 - Walt Disney
- Fallegu lögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson
- Henri rænt í Rússlandi - Þorgrímur Þráinsson
Barna- og ungmennafræði- og handbækur
- Steindi í orlofi - Steinþór Hróar Steinþórsson
- Vísindabók Villa - Truflaðar tilraunir -Vilhelm Anton Jónsson
- Stóra fótboltabókin með Gumma Ben -Guðmundur Benediktsson
- 13 þrautir jólasveinanna: Óþekktarormar - Huginn Þór Grétarsson
- Brandarar og gátur 3 - Huginn Þór Grétarsson
- Jólaföndur - Bókafélagið
- Fótboltaspurningar 2018 - Bjarni Þór Guðjónsson
- Leyndarmálin mín - Bókafélagið
- Norrænu goðin - Johan Egerkranz
- Svarthol - Sævar Helgi Bragason
Ungmennabækur
- Ljónið - Hildur Knútsdóttir
- Rotturnar - Ragnheiður Eyjólfsdóttir
- Vítisvélar - Philip Reeve
- Pax- Níðstöngin - Åsa Larsson & Ingela Korsell
- Hyldýpið - Camilla Sten & Viveca Sten
- Bækur duftsins - Villimærin fagra - Philip Pullman
- Flókið líf Leu Ólivers - Catherine Girard-Audet
- Sölvasaga Daníelssonar - Arnar Már Arngrímsson
- Hvísl hrafnanna 2 - Malene Sølvsten
- Skjaldbökur alla leiðina niður - John Green
Fræði og almennt efni
- Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson
- Flóra Íslands - Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg, Þóra Ellen Þórhallsdóttir
- Beint í ofninn - Nanna Rögnvaldardóttir
- Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur - Þórður Snær Júlíusson
- Hvað er í matinn? - Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir
- Ekki misskilja mig vitlaust! - Guðjón Ingi Eiríksson
- Hvítabirnir á Íslandi - Rósa Rut Þórisdóttir
- Stóra Disney uppskriftabókin - Vinsælustu uppskriftirnar- Tobba Marinós ritst.
- Prjónað af ást - Lene Holme Samsöe
- Kambsmálið - Jón Hjartarson
Ævisögur
- Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir
- Aron - sagan mín - Aron Einar Gunnarsson og Einar Lövdahl
- Skúli fógeti - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir
- Henny Hermanns – Vertu stillt! - Margrét Blöndal
- PQ-17 skipalestin - Kolbrún Albertsdóttir
- Hasim - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
- Níu líf Gísla Steingrímssonar - Sigmundur Ernir Rúnarsson
- Geðveikt með köflum - Sigursteinn Másson
- Nú brosir nóttin - æviminningar Guðmundar Einarssonar - Theódór Gunnlaugsson
- Ærumissir - Davíð Logi Sigurðsson
Hljóðbækur
- Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason
- Hrakningar á heiðarvegum - Pálmi Hannesson
- Kapítóla - E.D.E.N. Southworht
- Nú - nú, óskráð saga - Steinþór Þórðarson segir frá
- Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson
Uppsafnað frá áramótum - söluhæstu bækurnar frá 1. janúar 2018
- Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason
- Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir
- Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson
- Þorpið - Ragnar Jónasson
- Siggi sítróna - Gunnar Helgason
- Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson
- Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir
- Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir
- Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason
- Orri óstöðvandi - Bjarni Fritzson