Menning

Glænýr bóksölulisti: Arnaldur segir ekkert sérstaklega kalt á toppnum

Jakob Bjarnar skrifar
Arnaldur gefur ekki tommu eftir. Hann óraði ekki fyrir þessari velgegni þegar hann skrifaði sína fyrstu glæpasögu, Syni duftsins 1997.
Arnaldur gefur ekki tommu eftir. Hann óraði ekki fyrir þessari velgegni þegar hann skrifaði sína fyrstu glæpasögu, Syni duftsins 1997. EPA/QUIQUE GARCIA
Enn og aftur einokar hinn snjalli glæpasagnahöfundur Arnaldur Indriðason efsta sæti bóksölulistans en Vísir birtir nú glænýja sölulista sem taka til vikunnar 5. til 11. desember. Eins og hann hefur gert árum saman. Vísir heyrði í Arnaldi í tilefni þessa og spurði einfaldlega hvort það væri ekki kalt á toppnum?

„Nei, ekkert sérstaklega kalt. Stúlkan hjá brúnni hefur fengið frábærar viðtökur og maður er þakklátur fyrir það enda held ég að hún taki á mjög brýnum málum,“ segir Arnaldur.

Nýja bókin hans hefur hlotið afar góðar viðtöku, bæði meðal gagnrýnenda og svo bókakaupenda eins og liggur fyrir. Nýverið rauf Arnaldur 500 þúsund eintaka sölu á Íslandi. Sem er einstakur árangur. Bjóst hann við þessu þegar hann tók sig til og fór að semja glæpasögur fyrir íslenska lesendur.

„Mig óraði alls ekki fyrir þessu þegar ég sendi frá mér Syni duftsins enda glæpasögur ekki í hávegum hafðar á þeim tíma. Það hefur breyst sem betur fer á þeim árum sem liðin eru og núna er gaman að sjá hvernig þær raða sér á metsölulistana.“

Arnaldur segist ekkert á þeim buxunum að hætta á næstunni en árlega hafa aðdáendur hans getað gengið að bók eftir hann vísri.

„Ég er ekkert að hætta á næstunni enda margt ósagt um lögreglumanninn Konráð sem ég hef mjög gaman að velta fyrir mér.“

Arnaldur, Yrsa og Óttar öll á sínum stað

„Stóru tíðindin eru í raun þau að glæpasagnahöfundarnir Arnaldur og Yrsa halda enn og aftur yfirburðarstöðu sinni á íslenskum bókamarkaði. Þau eiga mest seldu bækur vikunnar og ársins alls. Jafnvel þótt enn sé svolítið eftir af árinu og vissulega stærstu bóksöludagar ársins, þá finnst mér nánast útilokað að einhver breyting verði á stöðu þeirra,“ segir Bryndís Loftsdóttir hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda.

Yrsa glæpasagnadrottningin sjálf, sú eina sem hefur velgt Arnaldi undir uggum.Mynd/Lilja Birgisdóttir
Glænýir bóksölulistar liggja nú fyrir. Og, líkt og Bryndís bendir á þá eru íslenskir bókakaupendur íhaldssamir. Þeir vita hvað þeir vilja. Allt er í föstum skorðum sé litið til undanfarinna ára. 25. Útkallsbókin eftir Óttar Sveinsson gefur ekkert eftir og er áfram í þriðja sæti listans. Ragnar Jónasson klifrar áfram upp listann með Þorpið sem bóksalar völdu í gær þriðju bestu íslensku skáldsögu ársins.

Gunnar og Ævar Þór kljást sín á milli

Hin árlega keppni milli Gunnars Helgasonar og Ævars Þórs Benediktssonar heldur áfram.

„Gunnari Helgason seldi meira af Sigga sítrónu í síðustu viku en Ævar af Tímaferðalaginu. Hins vegar hefur Ævar betur þegar litið er til sölu ársins þar sem hann er tveimur sætum ofar en Gunnar. Nýr höfundur, Bjarni Fritzson, með Orra óstöðvandi, hefur auk þess stimplað sig rækilega inn hjá yngri lesendum og situr í tíunda sæti bæði aðallistans og heildarsölulistans sem er frábær árangur,“ segir Bryndís.

Ásdís Halla er áfram með langvinsælustu ævisöguna og situr í áttunda sæti aðallistans. „Aron Einar Gunnarsson og Henny Hermanns eru nokkuð neðar á listanum, í sautjánda og átjánda sæti og því ólíklegt að staða Ásdísar sem drottningar ævisagnanna breytist nokkuð.

Hildur Knútsdóttir er óskoraður meistari ungmennabókanna.fbl/gva
Steindi Jr. situr áfram á toppi fræðibókalista barna með Steinda í orlofi á meðan Gummi Ben og Vísinda-Villi berjast um annað og þriðja sætið. Villi sat í öðru sæti í síðustu viku með Trufluðu tilraunirnar sínar en verður að gefa það eftir til Stóru fótboltabókarinnar hans Gumma Ben í þessari viku.

Hildur tvímælalaust í hópi okkar sterkustu höfunda

Og þá hlýtur Hildur Knútsdóttir að mega heita óskoraður meistari ungmennabókanna. Bók hennar, Ljónið, hefur setið í fyrsta sæti ungmennabókalistans frá því samantekt jólabókasölunnar hófst í byrjun nóvember.

„Hildur er ef til vill ekki á radarnum hjá eldri lesendum en hefur byggt upp traustan lesendahóp með spennu- og hrollvekjubókunum Vetrarfríi og Vetrarhörkum. Sú síðari hlaut einmitt Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2016 og Ljónið er tilnefnt til verðlaunanna í ár.“

Bryndís segir Hildi tvímælalaust í hópi okkar sterkustu höfunda og það eru ótrúleg verðmæti fólgin í því að hún sé að skrifa fyrir hinn íslenska örsmáa og vanrækta ungmennabókamarkað. „Það er ánægjulegt að sjá að útgáfa ungmennabóka er þó mun öflugri í ár en hún hefur verið á undanförnum árum og óskandi að öll ungmenni fái íslenska bók í jólagjöf.“

Bryndís Loftsdóttir segir að það þurfi mikið á að ganga ef staðan á bóksölulistunum breytist mikið.fbl/Eyþór
Þá vill Bryndís nefna að fjölmargir íslenskir útgefendur hafi ákveðið að hætta að plasta bækur sínar. Það er þó ástæðulaust fyrir kaupendur að hafa áhyggjur, eftir sem áður verður hægt að skipta öllum nýjum íslenskum bókum, plöstuðum jafnt sem óplöstuðum. Best er þó að biðja um skiptimiða, sé verið að kaupa bækur til gjafa. Plöstun bóka er alveg sér-íslenskt fyrirbrigði. Fyrir nokkrum árum hættu útgefendur að plasta kiljur og nú er röðin komin að jólabókum. Það er ósk íslenskra útgefenda að neytendur taki þessari umhverfisvænu breytingu vel.

 

 

Topplistinn - söluhæstu titlar Bóksölulistans 5.-11. desember                         

  1. Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason        
  2. Brúðan - Yrsa Sigurðardóttir     
  3. Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson       
  4. Þorpið - Ragnar Jónasson     
  5. Siggi sítróna - Gunnar Helgason       
  6. Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson      
  7. Orri óstöðvandi     - Bjarni Fritzson       
  8. Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir    
  9. Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir      
  10. Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason        
  11. Fíasól gefst aldrei upp - Kristín Helga Gunnarsdóttir    
  12. Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur - Þórður Snær Júlíusson     
  13. Beint í ofninn - Nanna Rögnvaldardóttir    
  14. Hvolparnir bjarga jólunum - Hvolpasveitin       
  15. Lára fer til læknis - Birgitta Haukdal     
  16. Krýsuvík - Stefán Máni       
  17. Aron - sagan mín - Aron Einar Gunnarsson og Einar Lövdahl       
  18. Henny Hermanns – Vertu stillt! - Margrét Blöndal     
  19. Skúli fógeti - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir     
  20. Steindi í orlofi - Steinþór Hróar Steinþórsson       
                                  

Íslensk skáldverk                               

  1. Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason        
  2. Brúðan    - Yrsa Sigurðardóttir        
  3. Þorpið - Ragnar Jónasson     
  4. Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir      
  5. Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason        
  6. Krýsuvík - Stefán Máni       
  7. Lifandilífslækur - Bergsveinn Birgisson    
  8. Ástin, Texas - Guðrún Eva Mínervudóttir    
  9. Svik - Lilja Sigurðardóttir      
  10. Stormfuglar - Einar Kárason      
                                 

Þýdd skáldverk                             

  1. Jól í Litla bakaríinu við Strandgötu - Jenny Colgan       
  2. Dag einn í desember  - Joise Silver        
  3. Alein - Mary Higgins Clark       
  4. Saga tveggja borga - Charles Dickens       
  5. Sagnaseiður - Sally Magnusson    
  6. Galdra-Manga - Tapio Koivukari        
  7. Lífið heldur áfram - Winne Li         
  8. Í nafni sannleikans - Viveca Sten     
  9. Þurrviðri  - Peter Robinson      
  10. Glerstofan - Ann Cleeves     
                                 

Ljóð                             

  1. Vammfirring - Þórarinn Eldjárn        
  2. Hjarta landsins  - Ómar Ragnarsson    
  3. Sálumessa - Gerður Kristný       
  4. Haustaugu - Hannes Pétursson     
  5. Rof - Bubbi Morthens         
  6. Smáa letrið - Linda Vilhjálmsdóttir        
  7. Hryggdýr - Sigurbjörg Þrastardóttir        
  8. Dauðinn í veiðarfæraskúrnum - Elísabet Jökulsdóttir       
  9. Ljóð muna ferð - Sigurður Pálsson     
  10. Vetrarland - Valdimar Tómasson        
                                 

Barnabækur - skáldverk                               

  1. Siggi sítróna - Gunnar Helgason       
  2. Þitt eigið tímaferðalag -     Ævar Þór Benediktsson        
  3. Orri óstöðvandi     - Bjarni Fritzson       
  4. Fíasól gefst aldrei upp - Kristín Helga Gunnarsdóttir    
  5. Hvolparnir bjarga jólunum - Hvolpasveitin       
  6. Lára fer til læknis - Birgitta Haukdal     
  7. Afmæli hjá Láru - Birgitta Haukdal    
  8. Jólalögin okkar - Ýmsir - Jón Ólafsson     
  9. Jól með Láru - Birgitta Haukdal       
  10. Henri rænt í Rússlandi - Þorgrímur Þráinsson    
                                 

Barna- og ungmennafræði- og handbækur                               

  1. Steindi í orlofi - Steinþór Hróar Steinþórsson       
  2. Stóra fótboltabókin með Gumma Ben - Guðmundur Benediktsson  
  3. Vísindabók Villa - Truflaðar tilraunir - Vilhelm Anton Jónsson       
  4. Skrifum litlu stafina - Jessica Greenwell       
  5. Jólaföndur - Bókafélagið
  6. Brandarar og gátur 3 - Huginn Þór Grétarsson    
  7. 13 þrautir jólasveinanna: Óþekktarormar - Huginn Þór Grétarsson         
  8. Leyndarmálin mín - Bókafélagið
  9. Spurningabókin 2018 - Guðjón Ingi Eiríksson     
  10. Sjúklega súr saga - Sif Sigmarsdóttir / Halldór Baldursson         
                                 

Ungmennabækur                              

  1. Ljónið - Hildur Knútsdóttir      
  2. Rotturnar - Ragnheiður Eyjólfsdóttir       
  3. Pax- Níðstöngin     - Åsa Larsson & Ingela Korsell        
  4. Hyldýpið - Camilla Sten & Viveca Sten      
  5. Bækur duftsins - Villimærin fagra - Philip Pullman        
  6. Vítisvélar - Philip Pullman      
  7. Sölvasaga Daníelssonar - Arnar Már Arngrímsson       
  8. Skjaldbökur alla leiðina niður - John Green     
  9. Hvísl hrafnanna 2 - Malene Sølvsten        
  10. Hefnd - Kári Valtýsson       
                                 

Fræði og almennt efni                                

  1. Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson       
  2. Kaupthinking – Bankinn sem átti sig sjálfur - Þórður Snær Júlíusson     
  3. Beint í ofninn - Nanna Rögnvaldardóttir    
  4. Flóra Íslands - Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg, Þóra Ellen Þórhallsdóttir        
  5. Hvað er í matinn? - Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir      
  6. Ekki misskilja mig vitlaust! - Guðjón Ingi Eiríksson      
  7. Geggjaðar gátur og góðar - Guðjón Ingi Eiríksson     
  8. Hvítabirnir á Íslandi - Rósa Rut Þórisdóttir    
  9. Prjónað af ást - Lene Holme Samsöe    
  10. Stóra Disney uppskriftabókin - Vinsælustu uppskriftirnar- Ýmsir       
                                 

Ævisögur                              

  1. Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir    
  2. Aron - sagan mín - Aron Einar Gunnarsson og Einar Lövdahl       
  3. Henny Hermanns – Vertu stillt! - Margrét Blöndal     
  4. Skúli fógeti - Þórunn Jarla Valdimarsdóttir     
  5. PQ-17 skipalestin - Kolbrún Albertsdóttir       
  6. Hasim - Þóra Kristín Ásgeirsdóttir    
  7. Níu líf Gísla Steingrímssonar - Sigmundur Ernir Rúnarsson     
  8. Geðveikt með köflum - Sigursteinn Másson        
  9. Nú brosir nóttin - æviminningar Guðmundar Einarssonar     - Theódór Gunnlaugsson       
  10. Ærumissir - Davíð Logi Sigurðsson     
                                 

Hljóðbækur                                 

  1. Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson       
  2. Nú - nú, óskráð saga - Steinþór Þórðarson segir frá       
  3. Hrakningar á heiðarvegum - Pálmi Hannesson      
  4. Elsku Míó minn      - Astrid Lindgren       
  5. Stúlkan hjá brúnni  - Arnaldur Indriðason       
                                 

Uppsafnað frá áramótum - söluhæstu bækurnar frá 1. janúar 2018                    

  1. Stúlkan hjá brúnni - Arnaldur Indriðason        
  2. Brúðan    - Yrsa Sigurðardóttir        
  3. Útkall - Þrekvirki í djúpinu - Óttar Sveinsson       
  4. Þitt eigið tímaferðalag - Ævar Þór Benediktsson      
  5. Þorpið- Ragnar Jónasson      
  6. Siggi sítróna - Gunnar Helgason       
  7. Hornauga - Ásdís Halla Bragadóttir    
  8. Ungfrú Ísland - Auður Ava Ólafsdóttir      
  9. Sextíu kíló af sólskini - Hallgrímur Helgason        
  10. Orri óstöðvandi - Bjarni Fritzson     
 

 

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×