Jólaspá Siggu Kling - Sporðdrekinn: Hættu að tala niður til þín og lemja þig með svipunni Sigga Kling skrifar 7. desember 2018 09:00
Elsku Sporðdrekinn minn, það er til þessi setning sem akkúrat passar við þig þessa dagana: „Stundum þarf maður að feika það til að meika það“ og alveg sama hvað gerist skaltu halda andlitinu og sýna umheiminum að þú hefur styrkinn og viljann til að halda áfram að dafna þó þér finnist innst í hjartanu þú sért að gefast upp. Ef þú skoðar sjálfan þig aðeins betur þá gefstu aldrei upp, þú hættir kannski við eitt og annað og byrjar á einhverju allt öðru en þú bjóst við, það kallast bara að læra, efla sjálfan sig og finna út hver maður er. Það hefur verið mikið álag á þér og enginn tími til að spá í hvort maður sé þreyttur eða lífið sé ekki jákvætt og þú sért alveg að bugast, en það er svo sannarlega ekki að gerast hjartað mitt, heldur nákvæmlega núna ertu að finna sterkan tilgang fyrir hamingjuni því það má skipta um skoðun og breyta um stefnu því allur þessi farvegur sem þú hefur verið í mun nýtast þér til þess að ná þeim árangri sem þú krefst af sjálfum þér. Svo hættu að tala niður til þín og lemja þig með svipunni, er ekki er komið nóg? Þú ert að fara inn í tíma þar sem þú munt finna leiðir til að tjá þig betur og njóta þess virkilega að vera í félagsskap við aðra. Það eru svo margir sem kunna að meta þig og þurfa á þér að halda því þú hefur svo sterkt innsæi og djúpan skilning. Þér mun leiðast dramatík í ástinni og þessvegna hangir þú oft of lengi í samböndum sem eru ekkert að gera fyrir þig, þetta á ekki við alla sem eru í þessu stjörnumerki, heldur bara þá sem lesa þessi orð og hugsa já það er ég. Þá þarftu að bæta, blessa eða brjóta sambandið því þú hefur kraft til að setja svo sterkar áætlanir á lífsplanið þitt að þú munt koma sjálfum þér á óvart. Þetta tímabil mun verða eins og lottóvinningur þó þú sért handviss um að þú hafir ekki keypt miða.Frægir Sporðdrekar: Birkir Már Sævarsson landsliðsmaður, Dísa í World Class, Helga Braga Jónsdóttir leikkona, Björk Guðmundsdóttir söngkona, Scarlett Johansson leikkona, Whoopie Goldberg leikkona, Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir sjónvarpskona, Emmsjé Gauti rappari, Björk, Indira Ghandi, Karl bretaprins, Hillary Clinton, Leonardo DiCaprio, Magnús Scheving, Steingrímur Sævarr Ólafsson fjölmiðlaráðgjafi, Guðný Hrefna Sverrisdóttir, flugfreyja og gourmé kokkur, Hörður Ágústsson Macland snillingur, Indira Gandhi, Guðrún Ásmundsdóttir og Calvin Klein.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið Tónlist Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið Brjálaðar boltamömmur berjast Bíó og sjónvarp Stytta af Charlie Kirk á Times Square Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið Fleiri fréttir Stytta af Charlie Kirk á Times Square Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Sjá meira