Svíþjóð tryggði sér umspil

Anton Ingi Leifsson skrifar
Svíarnir eru að gera góða hluti.
Svíarnir eru að gera góða hluti. vísir/getty
Svíþjóð er komið í A-deild Þjóðadeildarinnar eftir 2-0 sigur á Rússum í úrslitaleik um sæti í umspili um sæti á EM 2020.

Fyrsta markið skoraði varnarmaður Manchester United, Victor Lindelöf, eftir að boltinn féll til hans eftir hornspyrnu.

Marcus Berg tvöfaldaði svo forystuna á 72. mínútu og tryggði Svíum frábæran 2-0 sigur á spútnikliði HM í sumar fyrir framan fullt hús í Stokkhólmi.

Svíar enda á toppi riðli tvö í B-deildinni og eru því búnir að minnsta kosti tryggja sér umspil um laust sæti á EM 2020 nái þeir ekki að tryggja sér beint á EM í gegnum undankeppnina.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira