Erlent

Mette-Marit með krónískan lungnasjúkdóm: „Við verðum því að lifa í einhverri óvissu“

Atli Ísleifsson skrifar
Mette-Marit á Mortensrud-hátíðinni í síðasta mánuði
Mette-Marit á Mortensrud-hátíðinni í síðasta mánuði Getty/Nigel Waldron
Mette-Marit, eiginkona Hákons, krónprins Noregs, greindi frá því í gær að hún þjáist af lungnatrefjun, krónískum lungnasjúkdómi. Hún kvaðst um árabil hafa glímt við sjúkdóminn, en fyrst nýverið hafa fengið greiningu.

Mette-Marit og Hákon greindu frá málinu í norsku sjónvarpi í gær. Hin 45 ára Mette-Marit sagði að sjúkdómurinn komi til með takmarka þátttöku sína í opinberum verkefnum krónprinsparsins.

Í samtali við NRK sagði hún sjúkdóminn krónískari en þau höfðu vonast til, en að um leið finni hún fyrir létti að hafa loks fengið greiningu. Frekari rannsókna sé þörf, en þau munu ekki fá svör við öllum spurningum sínum. „Við verðum því að lifa í einhverri óvissu,“ sagði Mette-Marit.

Sjaldgæfur sjúkdómur

Í upplýsingariti Landspítalans segir að lungnatrefun feli í sér bandvefsmyndun (trefjun) í lungum. Sjúkdómurinn sé sjaldgæfur og eru orsök hans oftast óþekkt. „Meðal þekktra orsaka eru heyryk og ýmiss konar annað ryk sem fólk andar að sér og auk þess gigtsjúkdómar. Það sem gerist er að í stað heilbrigðs lungnavefs kemur bandvefur (trefjar). Þannig truflast loftskipti um lungun og súrefni fer hvorki inn né koltvísýringur út úr líkamanum á eðlilegan hátt. Þetta getur leitt til öndunarbilunar.“

Helsta einkenni sjúkdómsins er hósti sem oftast er þurr og mæði sem í fyrstu er mest við mikla áreynslu en getur síðan komið við litla áreynslu og jafnvel í hvíld.

Ekki lífsstílstengt

Læknir prinsessunnar segir að sjúkdómur hennar hafi þróast lengi og að orsök hans tengist ekki lífsstíl hennar. Þetta snúist frekar að sjálfsofnæmi þar sem ónæmiskerfi hennar ráðist á eigin lungnavef og frumur líkamans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×