Nóbelsverðlaunahafi sem þurfti að selja verðlaun sín látinn Samúel Karl Ólason skrifar 4. október 2018 15:18 Leon Lederman. AP/FermiLab
Nóbelsverðlaunahafinn og eðlisfræðingurinn Leon Lederman er látinn. Hann lést á dvalarheimili í Rexburg í idaho að sögn eiginkonu hans og var 96 ára gamall. Lederman fékk Nóbelsverðlaunin árið 1988 fyrir störf sín varðandi öreindir og var það hann sem fann upp á viðurnefninu „guðseindin“ fyrir Higgs-bóseind. Lederman stýrði einnig Fermi rannsóknarstöðinni í Chicago á árunum 1978 til 89. „Það sem hann elskaði var fólk,“ segir Ellen Carr Lederman við AP fréttaveituna. „Að reyna að fræða fólk og hjálpa því að skilja hvað þeir voru að gera í vísindunum.“ Lederman fæddist 15. júlí 1922 í New York. Hann fékk háskólagráðu í efnafræði árið 1943, þjónaði í hernum í þrjú ár í seinni heimsstyrjöldinni og fékk doktorsgráðu í eðlisfræði árið 1951. Ledermann notaði verðlaunaféð sem hann fékk með Nóbelsverðlaununum til að kaupa sumarhús í Idaho en hann og eiginkona hans fluttu þangað árið 2011 vegna slæmrar heilsu hans. Hann þurfti svo að selja verðlaunagripinn á uppboði árið 2015 til að eiga fyrir lækna- og lyfjakostnaði. Michael Turner, prófessor hjá Háskólanum í Chicago, sem rekur Fermi rannsóknarstöðina, segir framlag Lederman til skilnings mannsins á þeim grunnöflum sem mynda heiminum hafa verið einstakt.The country should hang its head in shame https://t.co/OjQmxko2Th— Frida Ghitis (@FridaGhitis) October 4, 2018
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira