Foreldrar Rúriks tóku lán til að hjálpa honum í atvinnumennskunni Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. september 2018 08:00 Rúrik Gíslason fór frá HK árið 2005 þá 18 ára gamall. vísir/getty
Rúrik Gíslason, landsliðsmaður í fótbolta, fékk heldur betur góða aðstoð frá foreldrum sínum þegar að atvinnumennskan hófst hjá honum árið 2005. Rúrik fór þá 18 ára til Charlton á Englandi frá HK þar sem að hann er uppalinn en samningurinn var ekki stór. Til þess að hann gæti lifað almennilega í Lundúnum tóku foreldrar hans lán og létu landsliðsmanninn fá peninginn til að aðstoða hann. „Ég held að ég hafi aldrei sagt frá þessu áður en mamma og pabbi tóku lán til að koma mér út svo að ég gæti átt eitthvað til að lifa sómasamlegu lífi þarna úti. Ég fékk ekki mikinn pening á þessum samningi og þau aðstoðuðu mig,“ segir Rúrik í viðtali við tímaritið Glamour. „Ég hef alltaf átt þeirra stuðning 100 prósent í öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur og þá sérstaklega í fótboltanum. Það er gríðarlega mikilvægt og ein helsta ástæða þess að maður er búinn að endast í þessu svona lengi.“ Rúrik, sem varð þrítugur í febrúar, hefur spilað með Viborg, OB og FCK í Kaupmannahöfn og nú síðast Nürnberg og Sandhausen í Þýskalandi. Hann er einn af ellefu íslenskum leikmönnum sem hafa spilað í Meistaradeildinni. Á löngum ferli hefur hann alltaf haft stuðning foreldra sinna. Móðir Rúriks er þó öllu jákvæðari en faðir hans. „Mamma hefur alltaf hvatt mig í öllu og hrósar mér eftir hvern einasta leik, sama hvað ég hef gert, á meðan pabbi hefur alltaf getað fundið eitthvað sem ég hefði getað gert betur,“ segir Rúrik Gíslason.
Fótbolti Mest lesið Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Fótbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Fótbolti Fleiri fréttir „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Uppgjörið: Apollon - FH 0-2 | Flottur sigur í sögulegum leik hjá Fimleikafélaginu Uppgjörið: Breiðablik - Csíkszereda 8-1 | Meiriháttar slátrun í Kópavoginum Dagný orðin sendiherra West Ham „Eigum að gera mikið betur í þessu og vitum það manna best“ UEFA hætt við sniðgöngu og evrópskar stelpur mega spila Raheem Sterling ákærður Liðsfélagi Alberts kominn í stríð við félagið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Dönsk landsliðsstjarna dæmd Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Pirraður Ronaldo tekinn af velli og liðinu gekk betur einum manni færri Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Sjá meira