Minnst fjórtán látnir á Filippseyjum Samúel Karl Ólason skrifar 15. september 2018 14:39 Um fjórar milljónir manna búa á svæðinu sem fellibylurinn fór yfir og voru þúsundir flutt á brott. Vísir/AP
Minnst fjórtán eru dánir eftir að fellibylurinn Mangkhut fór yfir Filippseyjar og olli þar miklum skemmdum. Um fjórar milljónir manna búa á svæðinu sem fellibylurinn fór yfir og voru þúsundir flutt á brott. yfirborð sjávar hækkaði um sex metra á ákveðnum stöðum og flæddi langt inn á land. Talið er að tala látinna muni hækka frekar en svæðið sem Mangkhut fór yfir er strjábýlt og er símasamband víða úti. Þá hefur björgunaraðilum átt erfitt með að komast um svæðið og skaðinn hefur ekki verið metinn. Meðal hinna látnu eru tveir björgunarmenn sem voru að reyna að bjarga fólki sem varð fyrir aurskriðu. Einn íbúa sem AFP ræddi við segist hafa orðið vitni að tugum óviðra á ævi sinni. Ekkert hafi hins vegar getað undirbúið hana fyrir Mangkhut, sem er öfulgasta óveður þessa árs. „Þetta var eins og heimsendir. Þetta var sterkari fellibylur en Lawin," sagði Bebeth Saquing. Lawin er fellibylur sem fór yfir eyjarnar árið 2016. Yfirvöld Filippseyja segjast þó hafa verið mun betur undirbúin en oft áður. Íbúar hafi verið varaðir við með miklum fyrirvara, skólum hafi verið lokað og herinn hafi verið settur í viðbragðsstöðu. Mangkhut er nú á leið til Kína og Hong Kong. Fellibylurinn missti þó einhvern styrk yfir Filippseyjum. Í Hong Kong búa íbúar og yfirvöld sig undir átökin og þá sérstaklega fyrir sjávarflóð sem búist er við að verði mikil.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira