Slóvakinn Sefcovic vill leiða ESB Atli Ísleifsson skrifar 17. september 2018 12:59 Hinn 52 ára Maros Sefcovic hefur farið með málefni orkubandalagsins innan framkvæmdastjórnarinnar. Vísir/EPA
Slóvakinn Maros Sefcovic, einn varaforseta framkvæmdastjórnar ESB, hefur lýst yfir að hann sækist eftir því að taka við embætti forseta framkvæmdastjórnarinnar þegar Jean Claude Juncker lætur af störfum eftir kosningarnar til Evrópuþingsins á næsta ári. Hinn 52 ára Sefcovic hefur að undanförnu farið með málefni orkubandalagsins innan framkvæmdastjórnarinnar. Hann er fulltrúi Jafnaðarmannaflokksins SMER í Slóvakíu og hefur lengi starfað í Brussel, fyrst sem sendiherra Slóvakíu frá árinu 2004 og svo sem fulltrúi Slóvakíu í framkvæmdastjórninni frá árinu 2010. Hann vonast til að verða frambjóðandi fylkingar Jafnaðarmanna á Evrópuþinginu. Leiðtogaráð ESB mun tilnefna næsta forseta framkvændastjórnarinnar þar sem því er ætlað að taka tillit til niðurstöðu kosninganna til Evrópuþingsins. Evrópuþingið hefur talað fyrir því að forsetinn verði valinn úr hópi frambjóðenda fylkinganna á þinginu. Deildar meiningar eru þó um þá skoðun. Evrópuþingmaðurinn Manfred Weber, leiðtogi Evrópska þjóðarflokksins (EPP) á Evrópuþinginu, lýsti fyrr í mánuðinum yfir að hann vilji verða næsti forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Evrópusambandið Slóvakía Tengdar fréttir Merkel vill sjá Weber sem arftaka Juncker Þýski Evrópuþingmaðurinn Manfred Weber lýsti í dag yfir að hann sækist eftir því að taka við embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB á næsta ári. 5. september 2018 23:22 Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Sjá meira
Merkel vill sjá Weber sem arftaka Juncker Þýski Evrópuþingmaðurinn Manfred Weber lýsti í dag yfir að hann sækist eftir því að taka við embætti forseta framkvæmdastjórnar ESB á næsta ári. 5. september 2018 23:22