Áströlsk Instagram-stjarna lést á snekkju mexíkósks milljarðamærings Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 3. september 2018 07:00 Sinead McNamara. instagram
Grísk lögregluyfirvöld rannsaka nú dauða Sinead McNamara, ástralskrar Instagram-stjörnu, sem lést eftir að hafa fundist í alvarlegu ástandi á snekkju mexíkóska milljarðamæringsins Alberto Bailleres síðastliðinn fimmtudag. McNamara, sem var tvítug að aldri, vann á snekkju Bailleres sem var í höfn við grísku eyjuna Kefalonia. McNamara fannst alvarlega slösuð á snekkjunni og var úrskurðuð látin skömmu síðar þegar verið var að flytja hana á spítalana. Bailleres, milljarðamæringurinn sem á snekkjuna, hafði yfirgefið snekkjuna ásamt fjölskyldu sinni nokkrum dögum áður en McNamara lést. Easy mornings Welcome to my humble abode thank u @mascotrhodes A post shared by Salt Bby (@sineadmcnamara) on Aug 8, 2018 at 9:39pm PDTMcNamara var með yfir 12 þúsund fylgjendur á Instagram þegar hún lést, að því er segir í frétt BBC, en fylgjendur hennar eru nú tæplega 22 þúsund. Á Instagram-síðu sinni deildi hún myndum frá ferðalögum sínum um heiminn en við eina þar hafði hún skrifað að hún byggi nú og ynni á báti og sæi allt það sem heimurinn hefði upp á að bjóða. „Já, ég held ég hafi það nokkuð gott,“ bætti hún svo við. Vinir, fjölskylda og aðdáendur hennar hafa undanfarna minnst hennar á samfélagsmiðlum. Óljóst hvernig dauða hennar bar að en frænka hennar sagði í samtali við ástralska fjölmiðla að fjölskyldan teldi að um slys hafi verið að ræða.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Fleiri fréttir Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Sjá meira