Dave Hopla á Íslandi: Heimsmethafi og fyrrum skotþjálfari Jordan og Kobe Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. september 2018 19:00 Dave Hopla. Skjámynd/Youtube/ISLkarfan
Bandaríski skotþjálfarinn Dave Hopla er staddur á Íslandi á vegum Valsmanna en hann mun kenna leikmönnum Vals sem og að halda sérstakt námskeið á laugardaginn. Dave Hopla er heimsþekktur skotþjálfari og sjálfur heimsmetshafi í flestum þriggja stiga körfum með einn bolta á einni mínútu. Hopla skoraði átján þrista á þessari ótrúlegu mínútu. Hopla er búinn að vera skotþjálfari í þrjátíu ár og þjálfað marga af bestu leikmönnum heims eins og þá Michael Jordan og Kobe Bryant. Fyrirlestrar Dave Hopla eru ekki síst athyglisverðir fyrir það að hann styður jafnan mál sitt með því að raða boltum í körfuna. Á heimasíðu hans kemur fram að hann hitti að jafnaði úr 495 af 500 skotum sínum. Árið 2005 náði hann sem dæmi að hitta úr 35.332 af 35.979 skotum sínum á fyrirlestrunum en það gerir 98,2 prósent nýtingu. Hann gerði enn betur sumarið 2008 þegar hann hitti úr 11.093 af 11.183 skotum eða 99,19 prósent. Dave Hopla hefur unnið með liðum í NBA, WNBA og hákskólakörfuboltanum sem og að vinna með einstökum körfuboltamönnum. Frægt dæmi af áhrifum hans var hjá NBA-liðinu Toronto Raptors tímabilið 2006 til 2007. Liðið hækkaði þriggja stiga skotnýtingu sína úr 30 prósent í nóvember 2006 í 40 prósent í janúar 2007 eða þá mánuði sem Hopla vann liðinu. Hopla hefur fullkomnað skothreyfinguna og þykir einnig mjög skemmtilegur kennari. Það gætu því margir bætt skotið sitt með því að komast í kynni við hann. Karfan tók viðtal við Dave Hopla og má sjá það hér fyrir neðan eða að smella hér. Það verður síðan opin æfing á Hlíðarenda næstkomandi laugardag.
Körfubolti Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Gummi Ben fór á kostum: „Hvað varst þú að gera?!“ Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti ÍBV samdi við bandarískan hermann Handbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport Sjáðu markaveislur United og Bayern München Fótbolti Ólafur skilur Magga en er ekki sammála Íslenski boltinn Besta frjálsíþróttafólk heims mætist í nýju móti Sport „Vil spila fyrir félagið eins lengi og mögulegt er“ Enski boltinn Fleiri fréttir Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins Sjá meira