Rannsaka leka til nýnasista Stefán Ó. Jónsson skrifar 30. ágúst 2018 07:52 Nýnasistahreyfingar birtu handtökuupplýsingarnar á vefsíðum sínum. Vísir/EPA
Þýska lögreglan rannsakar nú hvernig handtökuskipun á hendur Íraka, sem grunaður var um stunguárás, var lekið til öfgahópa í landinu. Mál írakans varð til þess að um 6.000 þjóðernishyggjumenn söfnuðust saman í þýsku borginni Chemnitz til að mótmæla á sunnudag. Átök brutust út við gagnmótmælendur og stóðu þau langt fram á nótt. Íraki og Sýrlendingur voru handteknir í tengslum við glæpinn á mánudag og kröfðust mótmælendur þess að innflytjendur yfirgæfu Þýskaland, landamærunum yrði lokað. Upplýsingum um handtökurnar er sagt hafa verið lekið til öfgahópanna sem svo birtu þær á vefsíðum sínum. Hóparnir eru sagðir samofnir þýskum nýnasistahreyfingum en því til sönnunnar hefur þýska lögreglan bent á að tíu mótmælendur séu nú til rannsóknar eftir að sást til þeirra heilsandi að nasistasið.Sjá einnig: Chemnitz jafnar sig eftir óeirðir öfgamanna Lekinn er jafnframt talinn varpa óþægilegu ljósi á tengsl þýsku lögreglunnar og öfgahópanna. Lekar sem þessir eru sjaldgæfir í Þýskalandi sökum gríðarlega strangs regluverks og ítarlegra verkferla í dómskerfinu. Því er lekinn álitinn mikið hneyksli og er haft eftir þýskum saksóknara á vef breska ríkisútvarpsins að ljóst sé að upp sé komið djúpstætt vandamál. Mennirnir tveir sem handteknir voru í tengslum við stunguárásina voru ákærðir fyrir manndráp á mánudag.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira