Lífið

Seth Rogen nennti ekki að leika við Kanye West

Bergþór Másson skrifar
Grínistinn Seth Rogen
Grínistinn Seth Rogen Vísir/Getty
Kanadíski grínistinn og leikarinn, Seth Rogen, sagði frá sögunni af því þegar að Kanye West bankaði upp á hjá sér og bauð honum út í körfubolta í viðtali við Rolling Stone tímaritið í gær. Rogen var að eigin sögn gríðarlega timbraður og orkulaus og neyddist þess vegna til þess að neita rapparanum.

Rogen býr rétt hjá líkamsrækt Wests og hafði séð rapparann þar áður en þrátt fyrir það kom honum það virkilega á óvart þegar Kanye bankaði upp á.

Rogen segir aðstæðurnar hafa verið mjög kómískar og að Kanye hafi staðið fyrir utan hjá sér eins og lítill strákur að spurja hvort að vinur sinn kæmi út að leika.

Hér að neðan má sjá myndband af viðtalinu, en Rogen segir einnig frá því atviki sem endaði á því að hann og James Franco fóru í sleik.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×