Innlent

Fjöl­miðla­konur senda frá sér yfir­lýsingu vegna Hjartar Hjartar­sonar

Tinni Sveinsson skrifar
Hjörtur Hjartarson.
Hjörtur Hjartarson. fréttablaðið/ernir
102 konur í fjölmiðlum hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna hegðunar Hjartar Hjartarsonar, dagskrárgerðarmanns hjá Sýn, á HM í Rússlandi. Tilefni yfirlýsingarinnar er að Hjörtur var sendur heim af HM í Rússlandi vegna óviðeigandi hegðunar en greint var frá því í fjölmiðlum í gær.

 

Fjölmiðlakonurnar krefjast þess að yfirmenn  fjölmiðla í landinu tryggi öryggi þeirra og annarra starfsmanna á vinnustað. Þær mótmæla því að í stéttinni starfi maður sem hafi ítrekað áreitt og beitt samstarfsfólk sitt ofbeldi.

Konur á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar útskýra afstöðu sína til málsins í færslu í hópi fjölmiðlakvenna á Facebook. Þar fordæma þær hegðun Hjartar á HM en segjast hafa fengið staðfest frá yfirmönnum Sýnar að málið sé í formlegu ferli og sé litið alvarlegum augum. Þess vegna ætli þær ekki að skrifa undir yfirlýsingu að svo stöddu.

Þær vilja að málið sé afgreitt samkvæmt ferlum fyrirtækisins og að niðurstaða fáist áður en þær tjái sig opinberlega um það.

„Við hörmum þennan leiðinlega atburð en að öðru leyti tjáum við ekki um mál einstakra starfsmanna. Málið er í ákveðnu ferli innan fyrirtækisins og verður áfram unnið á þeim vettvangi,“ segir Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri Miðla hjá Sýn, í samtali við Vísi.

Yfirlýsing fjölmiðlakvennanna 102

Við undirritaðar, konur í fjölmiðlum, krefjumst þess að yfirmenn fjölmiðla í landinu tryggi öryggi okkar og annarra starfsmanna sinna á vinnustað. Við mótmælum því að í stéttinni starfi maður sem hefur ítrekað áreitt og beitt samstarfsfólk sitt ofbeldi.

Hjörtur Hjartarson, íþróttafréttamaður hjá Sýn, hefur endurtekið orðið uppvís að því að ógna og veitast að samstarfsfólki sínu. Hirti var sagt upp störfum á RÚV árið 2012, eftir að hann beitti samstarfskonu sína ofbeldi sem varð til þess að hún kærði hann fyrir líkamsárás. Hún dró kæruna til baka eftir að hann axlaði ábyrgð og baðst afsökunar. Hjörtur var einnig sendur í leyfi frá störfum sem íþróttafréttamaður á Stöð 2 eftir að hann réðst á samstarfsmann sinn þar árið 2014. Á dögunum var Hjörtur svo sendur heim eftir að hafa veist á ný að fyrrverandi samstarfskonu sinni á RÚV þar sem hún var við störf á HM í knattspyrnu í Rússlandi.

Alkóhólismi er alvarlegur sjúkdómur. Hann leiðir þó ekki sjálfkrafa til ofbeldishegðunar. Við, konur í fjölmiðlum, teljum ólíðandi að maður sem ítrekað hefur brotið á samstarfsfólki sínu fái sífellt ný tækifæri í fjölmiðlastétt á þeim forsendum hann sé hættur að drekka. Við höfnum því að vinna við slíkar aðstæður.

Við krefjumst þess að tekið sé fastar á ofbeldi og áreitni á vinnustöðum okkar. Við skorum einnig á starfsmenn fjölmiðla, stéttarfélög fjölmiðlafólks og sérstaklega yfirmenn Sýnar og annarra fjölmiðla að fylgja eftir fögrum fyrirheitum #MeToo og sýna í verki að þegar ofbeldi og ógnandi hegðun er beitt „kastast ekki í kekki” milli fólks, heldur ber ofbeldismaðurinn einn ábyrgð á sinni hegðun.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, RÚV

Sunna Valgerðardóttir, RÚV

Ingibjörg Rósa Björnsdóttir, sjálfstætt starfandi blaðakona

Kristjana Arnarsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV

Þórhildur Þorkelsdóttir, RÚV

Bára Huld Beck, Kjarninn

Alma Ómarsdóttir, RÚV

Ólöf Ragnarsdóttir, RÚV

Margrét Erla Maack, Kjarninn, áður RÚV og 365.

María Lilja Þrastardóttir, sjálfstætt starfandi blaðakona

María Björk Guðmundsdóttir, RUV

Þórgunnur Oddsdóttir, RÚV

Auður Ösp Guðmundsdóttir, DV

Lovísa Árnadóttir, fv. íþróttafréttakona á RÚV

Milla Ósk Magnúsdóttir, RÚV

Eva Björk Ægisdóttir, sjálfstætt starfandi ljósmyndari

Ásdís Ólafsdóttir, fyrrum dagskrárgerðarmaður á RÚV

Ragnheiður Thorsteinsson, RÚV

Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, Víkurfréttir

Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Mannlíf og sjálfstætt starfandi

Viktoría Hermannsdóttir, RÚV

Gunnþórunnn Jónsdóttir, Fréttablaðinu

Snærós Sindradóttir, RÚV

Júlía Margrét Alexandersdóttir, Morgunblaðinu

Lára Ómarsdóttir, RÚV

Olga Björt Þórðardóttir, ritstjóri Fjarðarpóstsins

Ragnhildur Thorlacius, RÚV

Erla María Markúsdóttir, mbl.is

Anna Margrét Gunnarsdóttir, fyrrum blaðamaður á Nýju Lífi, Birtíngi

Sigríður Pétursdóttir, lausapenni hjá RÚV og fleiri fjölmiðlum

Ragnhildur Ásvaldsdóttir, sjálfstætt starfandi við dagskrárgerð

Vera Illugadóttir, RÚV

Aníta Estíva Harðardóttir, DV

Ragnhildur Aðalsteinsdóttir, Mannlífi

Kristborg Bóel, Austurglugganum og Austurfrétt

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ritstjóri Stundarinnar

Sara Sjöfn Grettisdóttir, ritstjóri Eyjafrétta

Anna Marsibil Clausen, sjálfstætt starfandi

Ragna Gestsdóttir DV

Þorgerður Anna Gunnarsdóttir, mbl.is

Erla Hjördís Gunnarsdóttir, Bændablaðið

Erla Karlsdóttir, fyrrum blaðakona á DV

Brynhildur Björnsdóttir

Þórhildur Ólafsdóttir, RÚV

Þorgerður E. Sigurðardóttir, RÚV

Silja Ástþórsdóttir, fyrrverandi umbrotskona á Stundinni og fyrrum yfirhönnuður Fréttablaðsins

Birna Pétursdóttir

Anna Gyða Sigurgísladóttir, RÚV

Halla Þórlaug Óskarsdóttir, RÚV

Anna Lilja Þórisdóttir, Morgunblaðið

Lára Theódóra Kristjánsdóttir

Fanney Birna Jónsdóttir, Kjarninn og RÚV

Jóhanna Sveinsdóttir

Sigríður Elín Ásmundsdóttir

Áslaug Guðrúnardóttir, fyrrverandi fréttamaður RÚV

Anna Margrét Björnsson, mbl.is

Dagný Hulda Erlendsdóttir, RÚV

Kolbrún Björnsdóttir

Björg Magnúsdóttir, RÚV

Sigyn Blöndal, RÚV

Áslaug Karen Jóhannsdóttir

Ellen Ragnarsdóttir, Morgunblaðið

Ásdís Ásgeirsdóttir

Lovísa Arnardóttir, Fréttablaðinu

Kristborg Bóel - Austurglugganum og Austurfrétt

Lára Hanna Einarsdóttir, sjálfstætt starfandi

Ástríður Viðarsdóttir, fyrrum blaðamaður mbl.is

Þóra Tómasdóttir

Steinunn Stefánsdóttir, fv. aðstoðarritstjóri á Fréttablaðinu

Erla Tryggvadóttir, fyrrv. starfsmaður RÚV

María Erla Kjartansdóttir, Birtíngi

Kolbrún Björnsdóttir

Inga Lind Vigfúsdóttir, RÚV

Auður Albertsdóttir, fyrrv. blaðamaður mbl.is

Gyða Lóa Ólafsdóttir, fyrrum blaðamaður Fréttablaðinu.

Sigrún Erla Sigurðardóttir

Halla Ólafsdóttir, RÚV

Marta Goðadóttir, áður Nýtt líf.

Elísabet Indra Ragnarsdóttir, dagskrárgerðarkona

Birta Björnsdóttir, RÚV

Bergljót Baldursdóttir, fréttamaður RÚV

Ásrún Brynja Ingvarsdóttir - RÚV

Elín Sveinsdóttir -RÚV

Erna Kettler, RÚV

Helga Kristjáns, Vikan

Þórdís Arnljótsdóttir, RÚV

Jórunn Sigurðardóttir, RÚV

Elísabet Hall, fyrrverandi framleiðandi hjá 365

Anna Brynja Baldursdóttir, fyrrum blaðakona Nýs Lífs og Vikunnar

Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, fyrrum fjölmiðlakona

Guðrún Sóley Gestsdóttir, RÚV

Margrét Marteinsdòttir, fyrrverandi fréttakona á RÙV

Ingveldur G. Ólafsdóttir, fyrrum starfsmaður RÚV og nú lausastúlka

María Sigrún Hilmarsdóttir, RÚV

Arnhildur Hálfdánardóttir, RÚV

Helga Arnardóttir, dagskrárgerðarkona á RÚV

Rósa Jóhannsdóttir, ljósmyndari

Halla Gunnarsdóttir, fyrrum þingfréttaritari Morgunblaðsins

Brynja Þorgeirsdóttir, RÚV

Arndís Björk Ásgeirsdóttir, RÚV

Sjöfn Þórðardóttir, verkefnastjóri

Inga Lind Karlsdóttir

Yfirlýsing fjölmiðlakvenna á fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar

Við fordæmum hegðun Hjartar á Heimsmeistaramótinu. Allir eiga að geta sinnt starfi sínu óáreittir, hvort sem það er í vinnuferð eða á vinnustað og að sjálfsögðu er annað óásættanlegt.

Við höfum fengið staðfest frá yfirmönnum okkar að málið er í formlegu ferli og litið alvarlegum augum. Við viljum að málið sé afgreitt og niðurstaða fáist áður en við tjáum okkur opinberlega. Þess vegna munum við ekki skrifa undir opinbera yfirlýsingu að svo stöddu.

Vísir er í eigu Sýnar hf.

Uppfært 27. júní kl. 10:29 með uppfærðum undirskriftalista. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×