Real Madrid styrkti stöðu sína í þriðja sæti spænsku úrvalsdeildarinnar þegar liðið bar sigurorð af Leganes, 2-1, á Santiago Bernabeu í dag.
Leikmenn á borð við Cristiano Ronaldo, Sergio Ramos, Luka Modric, Marcelo og Keylor Navas voru hvíldir í dag.
Gareth Bale fékk hins vegar tækifæri í byrjunarliðinu og nýtti það vel; kom Madridingum yfir á 8.mínútu. Borja Mayoral tvöfaldaði forystuna á lokamínútu fyrri hálfleiks. Gestirnir gáfust ekki auðveldlega upp og Darko Brasanac minnkaði muninn eftir rúmlega klukkutíma leik.
Nær komust þeir þó ekki og lokatölur 2-1 fyrir Real Madrid.
