10 myndir sem þú getur horft á á Valentínusardaginn 14. febrúar 2018 14:00 Hægt að velja sér eina fyrir kvöldið.
Í dag er Valentínusardagur og þá munu eflaust margir verja kvöldinu undir sæng fyrir framan sjónvarpið, glápandi á rómantískar myndir. Kvikmyndafræðineminn Siguður Arnar Guðmundsson tók sig til og setti saman lista fyrir lesendur yfir tíu kvikmyndir sem honum þykir viðeigandi að horfa á á þessum degi ástarinnar. Brokeback Mountain 2005 Ef eitthvað er sárara en óendurgoldin ást þá er það óréttlætanlega forboðin ást. Ástin sést vart fallegri á hvíta tjaldinu en í Brokeback Mountain. Il Postino 1994 Ástarljóð eru vandmeðfarin en hvað ef þú færð hjálp frá færu skáldi? Íslensk ljóðskáld eru í mikilli sókn í dag og rómantíkin er aldrei langt undan. Leitið innblásturs meðal okkar færustu ljóðskálda og reynið sjálf. Amélie 2001 Ef við erum ekki stórskrítin nú þegar getur leit okkar að ástinni leitt til þess, eða til mjög kyndugra kringumstæðna. Fögnum fjölbreytileikanum og afskrifum ekki óhefðbundnar leiðir til þess að finna hamingjuna með öðrum. Before Sunrise 1995 Þú kynntist yndislegri manneskju sem gæti verið lífsförunautur þinn, en gallinn er sá að þið eruð bæði að yfirgefa borgina sem þið eruð í. Lofið því hvort öðru að hittast aftur eftir nokkra mánuði. Er nokkuð erfitt að standa við slík plön? Her 2013 Gervigreind er ekki jafn langt komin í nútímasamfélagi og í Her en hvað ef þú gætir tengst „greind“ sem er jafnframt mótuð af og að þér? Braveheart 1995 Frelsi og ást er meginumfjöllunarefni Braveheart, epískrar frásagnar um fórnirnar sem William Wallace færði fyrir land sitt og fólk, og ástina. Paterson 2016 Paterson býr með unnustu sinni og lifir einföldu lífi; hann keyrir strætó, yrkir ljóð, fær sér bjór og elskar unnustu sína. Öll ljóð hans eru varðveitt í bókinni sem hann hleypir helst engum í. Casablanca 1942 Klassík með Humphrey Bogart og Ingrid Bergman. Hún er fyrrverandi ástkona hans og fyrir rælni ratar hún inn á bar hans í Casablanca, með eiginmanni sínum, og uppgjör fortíðarinnar liggur fyrir með tilheyrandi tilfinningahita. The Notebook 2004 Flestir hafa séð hana þessa enda ástæða til. Allavega tveggja klúta mynd sem gott er að hafa við höndina þegar rykkornin festast í augunum, sérstaklega undir lokin, einverra hluta vegna. Before Sunset 2004 Framhald Before Sunrise þar sem þráðurinn er tekinn upp aftur en aldrei varð úr endurfundum parsins, nema nú fyrir tilviljun, níu árum seinna. Geta þau virt loforðin sem þau gáfu hvort öðru?
Ástin og lífið Menning Mest lesið Sunneva veltir Evu Ruzu úr sessi Lífið Klórar sér í kollinum yfir nýrri göngubrú: Margt „mjög sérstakt“ sem menn hafi búið til síðustu ár Menning Ein glæsilegasta leikkona landsins á lausu Lífið Elskar Kennedy þó þeir ræði lítið pólitík í matarboðum Lífið Martin og Anna María selja hönnunaríbúð í Garðabæ Lífið Fáklædd og glæsileg við sundlaugarbakkann Lífið Flugfreyjusætið var inni á klósettinu Lífið Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Tónlist Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón Lífið Bubbi segir Hróa Hattar-brag á stuldinum Lífið Fleiri fréttir Fróði og Gandálfur snúa aftur í leitinni að Gollri Terence Stamp látinn Auglýsa eftir innsendingum til íslensku sjónvarpsverðlaunanna Nýr Rambo fundinn Óvænt nöfn á könnu Köngulóarmannsins Óþekkjanleg stjarna Ingvar E. valinn besti leikarinn í Grikklandi Malkovich klipptur út úr Hinum fjóru fræknu Reykjavík Visual Effects tilnefnt til tveggja Emmy-verðlauna Sleðinn úr Citizen Kane orðinn næstverðmætasti leikmunurinn Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bestu hlutverk Michaels Madsen: Óþokki með viskýrödd og uppáhald Tarantino Djöfullinn klæðist Prada á ný Sjá meira
Klórar sér í kollinum yfir nýrri göngubrú: Margt „mjög sérstakt“ sem menn hafi búið til síðustu ár Menning
Klórar sér í kollinum yfir nýrri göngubrú: Margt „mjög sérstakt“ sem menn hafi búið til síðustu ár Menning