Sveipaður ítalska fánanum með nýnasistatákn í andlitinu Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. febrúar 2018 14:48 Luca Traini var handtekinn í gær. Vísir/Epa
Luca Traini, 28 ára ítalskur karlmaður, var handtekinn í gær fyrir að hafa skotið á innflytjendur í ítalska bænum Macerata. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á svæðinu er Traini gallharður þjóðernissinni og þá er hann með nýnasistatákn húðflúrað í andlit sér. Traini skaut á vegfarendur á nokkrum stöðum í bænum Macerata á Ítalíu í gær, meðal annars nálægt lestarstöðinni, en árásin virðist hafa beinst að hörundsdökkum innflytjendum. „Hann keyrði um í bíl sínum og þegar hann kom auga á svart fólk þá skaut hann það,“ var haft eftir Marcello Mancini, íbúa í Macerata, á sjónvarpsstöð fréttaveitunnar Reuters. Sex særðust í árásinni í gær, þar af einn alvarlega.Bauð sig fram fyrir þjóðernisflokk Í frétt Reuters segir að Traini hafi verið sveipaður ítalska fánanum þegar vopnaðir lögregluþjónar gerðu atlögu að honum í kjölfar árásarinnar. Þá segja vitni að Traini hafi heilsað að fasistasið áður en hann var handtekinn og hrópað „Lengi lifi Ítalía!“ Traini bauð sig fram fyrir hið hægrisinnaða Norðurbandalag (Lega Nord) í kosningum í fyrra, án þess þó að hljóta nokkurt atkvæði, en flokkurinn er afar neikvæður í afstöðu sinni til innflytjenda. Þá kemur fram í frétt Verdens Gang að húðflúrið, sem Traini er með fyrir ofan annað augað, sé hið svokallaða Wolfangel-tákn, eða úlfakrókur upp á íslensku. Nasistar gerðu táknið að sínu í seinni heimsstyrjöldinni og þá hafa nýnasistahópar í Bandaríkjunum og Evrópu notað það í merkjum sínum síðustu áratugi. Talið morðmál sem er nú til rannsóknar í bænum hafi verið kveikjan að árás Traini. Hann skaut m.a. á fólk við Via Spalato og Via dei Velini en á þeim slóðum hefur lögregla rannsakað morð á átján ára stúlku sem fannst látin síðastliðinn miðvikudag. Karlmaður frá Nígeríu er í haldi lögreglu vegna málsins.
Tengdar fréttir Fjórir hið minnsta særðir eftir skotárás á Ítalíu Fjórir hið minnsta hafa særst eftir að árásarmaður, einn eða fleiri, skaut úr bíl á vegfarendur í ítalska bænum Macerata í morgun. 3. febrúar 2018 12:09 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Fjórir hið minnsta særðir eftir skotárás á Ítalíu Fjórir hið minnsta hafa særst eftir að árásarmaður, einn eða fleiri, skaut úr bíl á vegfarendur í ítalska bænum Macerata í morgun. 3. febrúar 2018 12:09