Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir Trump að Norður-Kórea „vilji gera afkjarnorkuvæðingu“. Fulltrúar Norður-Kóreu hafa þó ekki staðfest það. Yfirlýsingin kom eftir að Kim Yong-chol, sendifulltrúi Norður-Kóreu, afhenti Trump bréf frá Kim í Hvíta húsinu í dag.
Trump sagði bréfið „afar áhugavert“ og innihald þess gæti verið gert opinbert síðar. Þrátt fyrir að hafa lýst bréfinu með þessum hætti sagði Trump fréttamönnum svo að hann hefði enn ekki opnað það. Þá sagði hann að mannréttindi hafi ekki verið rædd á fundi hans með Kim.
Upphaflega stóð til að Trump og Kim hittust í Singapúr 12. júní. Trump hætti hins vegar við fundinn með bréfi sem hann sendi Kim í síðustu viku. Vísaði Trump til reiði og fjandskapar norður-kóreskra ráðamanna í garð Bandaríkjanna dagana á undan.
The president said the personal letter Kim Jong Un wrote to him was "nice."
— POLITICO (@politico) June 1, 2018
Moments later, he said he hadn't read it. pic.twitter.com/gm38zBIJUY