Guardian: Swansea féll af því að Gylfi fór Tómas Þór Þórðarson skrifar 15. maí 2018 12:00 Gylfi Þór Sigurðsson fór til Everton og þá féll Swansea. vísir/getty
Sjö ára tvöl velska liðsins Swansea í ensku úrvalsdeildinni lauk um síðustu helgi þegar að liðið tapaði fyrir Stoke á lokadegi tímabilsins og féll niður í B-deildina. Liðið hefur verið á niðurleið undanfarin ár eftir að ná áttunda sæti 2014 en það hafnaði í tólfta sæti árið 2016 og svo fimmtánda sæti á síðustu leiktíð. Það var meira og minna einn maður sem að hélt Swansea-liðinu uppi en það var íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson. Þeir sem efuðust um þá staðreynd sáu hvað gerðist á nýliðnu tímabili þegar að Gylfi var farinn í Everton.Jóhann Berg Guðmundsson og félagar náðu mun betri árangri en spáð var.vísir/gettyEnska blaðið Guardian er einnig á því að brotthvarf Gylfa Þórs hafi orðið til þess að Swansea féll en það gerir upp spá sína í dag. Swansea var spáð 17. sæti og þar með áframhaldandi veru í efstu deild en það hafnaði í 18. sæti og er fallið. „Mögulegar Swansea felast í því hvað liðið gerir við peningana sem að það fékk fyrir stærstu sölu í sögu félagsins,“ sagði í umsögn um Swansea fyrir tímabilið en Svanirnir fengu 45 milljónir punda fyrir Gylfa Þór. Kaupin voru langt frá því nógu góð en liðið skoraði aðeins 28 mörk, fékk á sig 56 og spilar í B-deildinni á næstu leiktíð. „Brotthvarf Gylfa Sigurðssonar fór með möguleika Swansea á að halda sér uppi og stuðlaði að áframhaldandi hnignun liðsins. Swansea var alltaf að fara í botnbaráttu en sú barátta tapaðist að þessu sinni eftir tap á móti Stoke,“ segir í umsögn um Swansea nú í lok tímabilsins. Gylfa Þór og félögum var spáð sjöunda sæti en þeir höfnuðu í áttunda. Aftur á móti gerðu Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans mun betur en búist var við. Burnley var spáð 18. sæti en endaði í sjönda sæti og spilar í Evrópu á næstu leiktíð.
Enski boltinn Mest lesið Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Íslenski boltinn Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fyrrum markmaður Arsenal og Juventus lést í bílslysi Fótbolti Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Tottenham að landa Robertson en það er einn stór hængur á Telur að Tottenham falli: „Þeir eru afleitir“ Sjáðu hvernig City rúllaði yfir Chelsea og vandræði Spurs jukust Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Sjá meira