Vilja opinbera rannsókn og kröfu í dánarbú látins starfsmanns Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 20. janúar 2018 18:03 Talið er að konan hafi dregið sér fé á árunum 2010-2015 með greiðslu á tilhæfulausum reikningum að upphæð rúmlega 30 milljónum króna. Vísir/Vilhelm
Stjórn Malbikunarstöðvarinnar Höfða samþykkti á stjórnarfundi í gær að fela lögmanni Höfða að óska eftir opinberri rannsókn og undirbúa kröfu í dánarbú látins starfsmanns, en grunur er uppi um að hún hafi dregið að sér fé. Talið er að konan hafi dregið sér fé á árunum 2010-2015 með greiðslu á tilhæfulausum reikningum að upphæð rúmlega 30 milljónum króna. Samkvæmt tilkynningu frá Höfða eru engar vísbendingar um aðild annarra starfsmanna fyrirtækisins að meintum brotum. Í skýrslu Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar segir að grunur um misferli, sem kom upp eftir fyrirspurn frá lögmanni dánarbús starfsmannsins, sé á rökum reistur. Rannsókn á bókhaldsgögnum, reikningum, greiðslubókum og færsluyfirlitum sýni glögglega með hvaða hætti viðkomandi starfsmaður, sem var deildarstjóri sölu- og fjármáladeildar, nýtti sér aðstöðu sina til þess að draga sér fé með nokkuð reglubundnum hætti. Þannig hafi hún notfært sér nafn fyrirtækis sem áður var í eigu eiginmanns hennar og gaf út reikninga á Malbikunarstöðina í nafni þess. Stjórn Höfða hefur ákveðið að boða eins fljótt og kostur er til aðalfundar fyrirtækisins, að höfðu samráði við eigendur. Þar verður ný stjórn kosin. Í ljósi formlegrar ábyrgðar stjórnar á innra eftirliti, hafa þeir tveir stjórnarmenn, sem sátu í stjórn á umræddu tímabili tilkynnt eigendum að þeir hafi ákveðið að stíga til hliðar, gefa ekki kost á sér áfram, þannig að nýir stjórnarmenn komi að málinu.
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Fleiri fréttir Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Sjá meira