Lagður inn með lamandi höfuðverki eftir piparátkeppni Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 10. apríl 2018 12:48 Carolina Reaper chillipipar, heimsins sterkasti pipar skv. heimsmetabók Guinnes. Vísir/Getty
Karlmaður á fertugsaldri var lagður in á sjúkrahús í Bandaríkjunum eftir að hann tók þátt í chillipiparátkeppni þar sem hann borðaði eina af heimsins sterkustu tegund af chillipipar. BBC greinir frá. Maðurinn át hinn svokallaða Carolina Reaper chillipipar sem heimsmetabók Guinnes staðfesti árið 2013 að væri heimsins sterkasti chillipipar, metinn á 1.569.300 Scoville-stig en til samanburðar er jalapeno-pipar metinn á um 2.000 til 8.000 Scoville-stig. Strax eftir að maðurinn innbyrti piparinn kúgaðist hann og nokkrum dögum seinna leitaði hann á sjúkrahús með mikinn sársauka í hálsi og svæsna, lamandi höfuðverki sem stóðu aðeins yfir í nokkrar sekúndur í senn. Skoðun leiddi í ljós að æðar í heila hans höfðu dregist saman vegna piparsins og var maðurinn greindur með svokallað „Afturkræft heilaæða-samdráttarheilkenni,“ sem í einstaka tilvikum getur orsakað heilablóðfall. Fimm vikum seinna hafði maðurinn jafnað sig að fullu. Læknir sem skoðaði tilvikið segir mikilvægt að þeir sem borði jafn sterkan chillipipar og í þessu tilviki, geri sér grein fyrir því að ekki sé hættulaust að innbyrða mjög sterkan chillipipar. Finni viðkomandi fyrir sársauka í kjölfarið sé mikilvægt að leita sér læknishjálpar.
Mest lesið Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Erlent Baráttan um Framsókn muni snúast um sögulega stöðu Innlent „Kanntu ekki mannasiði mannfjandi?“ Innlent Magnús Eiríksson borinn til grafar Innlent Kvaðst hafa drepið fjölskylduna og ætlað að stinga sig í hjartað Innlent Neituðu að greiða starfsfólki á leið í eigin rekstur uppsagnarfrest Innlent Sverrir Bergmann hættir í bæjarstjórn Innlent Telur Trump gera mistök Erlent Hafi nauðgað sex ára stúlku og eiginkonu sinni og birt af því myndir Innlent Nemi í jarðfræði hlaut Nýsköpunarverðlaunin Innlent Fleiri fréttir Telur Trump gera mistök Einn látinn eftir annað lestarslys á Spáni Óvæntur blaðamannafundur: Las „afrekabókina“ og sýndi myndir af glæpamönnum Fæðingum fækkaði um 1,62 milljónir milli ára Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Beiting hervalds ólíkleg en ekki útilokuð Ráðherra Trumps segir Evrópu móðursjúka Skutu flugskeytum fyrir tólf milljarða á einni nóttu Fyrsta árinu af fjórum lokið Fjórar hákarlaárásir á aðeins 48 klukkustundum Trump fer mikinn á Truth Social og virðist ætla sér Kanada Vöruðu við slæmum skilyrðum á brautinni Vitleysan „í þessum óþekka strák í Hvíta húsinu“ leiði vonandi til sjálfstæðis Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Býður Pútín sæti í „friðarráði“ fyrir Gasaströndina Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Rúmlega tuttugu látnir eftir árekstur tveggja hraðlesta Boðar leiðtogaráðið á aukafund vegna hótana Trumps Brýndi fyrir Trump að tollun hans væri „röng“ Þjóðverjar yfirgefa Grænland Ræddi við Trump: „Hlakka til að sjá hann“ Hervæddur hvunndagurinn í Nuuk Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Miklar sviptingar í Sýrlandi Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Tollahótanir Trump gætu hrundið af stað uggvænlegri atburðarás Nóbelsnefndin afdráttarlaus varðandi framsal verðlaunapeninga Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Sjá meira